Lögeign kynnir eignina Ásgarðsvegur 5, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-2359 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða 175,1 M², 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin býður upp á góða tekjumöguleika þar sem hún er á tveimur hæðum, baðherbergi á báðum hæðum og 6 herbergi.
Nánari Lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu teku við gangur sem tengir saman öll önnur rými efri hæðarinnar. Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi sem eru öll rúmgóð og með fataskápum. Baðherbergið á hæðinni er í upprunanlegu ástandi og er með flísum að hluta, Wc, sturtubaðkari og vask. Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, úr eldhúsinu er síðan stigi niður á jarðhæðina. Þegar komið er niður stigan á jarðhæðina(hálf niðurgrafinn) tekur við gangur þar sem bæði er útgengt út á verönd og síðan þvottahús/kyndikompa. þvottahúsið er með lökkuðu gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkrara. Á jarðhæðinni eru þrjú svefnherbergi sem eru rúmgóð og öll parketlögð. Baðherbergið er með flísum á gólfi, "walk in" sturtu, Wc og vask.
Að utan: gróinn garður er í kringum húsið og lítil timburverönd framan við eignina.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á