Djúpasel í Djúpadal Um er að ræða heilsárshús og 12 hektara eignaland í mynni Djúpadals í Eyjafjarðarsveit, um 25 km sunnan Akureyrar. Landið liggur sunnan/austan Djúpadalslóns. Húsið er rétt tæpir 140fm, byggt 2006, tvær hæðir. Annars vegar hrár en mjög rúmgóður steyptur kjallari og hins vegar hæð úr timbri.
Forstofa er með flísum og fatahengi. Baðherbergi er flísalagt, sturta, þvottavél og vaskur með góðri innréttingu. Herbergin eru þrjú. Tvö þeirra eru með innbyggðum kojum með sex svefnplássum, en eitt herbergið er með góðum skápum og pláss fyrir tveggja manna rúm. Stofa og eldhús koma saman í björtu alrými með opnu eldhúsi/stofu með eldhúsinnréttingu og dásamlegu útsýni í þrjár áttir yfir dalinn. Einfaldur og smekklegur pallur er við tvær hliðar hússins og fellur einstaklega vel inn í náttúruna umhverfis. Það hefur verið gróðursett lítillega af lerki, fjallafuru og birki í landið, en aðeins frá húsinu þannig að útsýni skerðist ekki. Fallegt er að líta í allar áttir, fagurt útsýni inn dalina og niður í innanverðan Eyjafjörð.
Annað: Húsið var smíðað í Eyjafjarðarsveit og flutt á staðinn á sínum tíma. Allar innréttingar í herbergjum, á baði og á eldhússvæði eru frá 2006 og eru í góðu standi og sama gildir um ísskáp/frysti og þvottavél. Tæki fylgja með í kaupum. Parket og flísar eru á gólfum aðalhæðar. Árið 2025 var boruð vatnshola rétt norðan við húsið, sett upp dæla og tengt inn í hús, og settur upp búnaður þar. Um sama leyti var bætt við öðrum vatnshitakút í kjallara, en áður var einn kútur frá um 2006. Þá var settur upp lítill pottur útivið. Um leið var allt rafmagn í húsinu yfirfarið. Ljósleiðari liggur inn í húsið og eins 3 fasa rafmagn. Húsið er kynnt upp með rafmagni. Öll vinna við vatn, rafmagn, gler og timbur hefur verið unnin af fagmönnum frá því að núverandi eigendur keyptu húsið árið 2009. Eignalandið sem um ræðir er afgirt með vel við haldinni girðingu sem hefur verið yfirfarin árlega. Engin önnur hús eru sömu megin í Djúpadal, en rústir eyðibýla og sela. Hestastóð og kindur rölta um dalinn yfir sumarið og mikið fuglalíf er við og í kringum vatnið. Húsið og svæðið veitir tækifæri fyrir einstaka náttúrupplifun í mjög fallegu og mikið til ósnertu umhverfi og mikið ævintýraland fyrir útivistar- og hestafólk svo og alla náttúruunnendur. Það er ökufært alveg upp að húsinu á góðum jeppa yfir vetrartímann. Ekki er hægt að keyra upp að húsinu allt árið,en annars bara um 600m gang frá bíl að húsi. Sveitavegur liggur inn dalinn hinum megin ár. Heitur pottur er ótengdur. Uppþvottvél í eldhúsi fylgir ekki með í kaupunum
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.