Fasteignaleitin
Opið hús:21. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 16. apríl 2026

Stuðlaberg 48

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
171 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
123.900.000 kr.
Fermetraverð
724.561 kr./m2
Fasteignamat
110.550.000 kr.
Brunabótamat
83.850.000 kr.
Mynd af Pétur Ísfeld Jónsson
Pétur Ísfeld Jónsson
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2079547
Landnúmer
122463
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi

Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu vel skipulagt og fjölskylduvænt parhús að Stuðlabergi 48 í Hafnarfirði.

Um er að ræða rúmgóða eign á tveimur hæðum með risi, samtals skráða 170,6 fm. Íbúðarrými er 151,9 fm, þar af 75,4 fm á jarðhæð og 76,5 fm á efri hæð. Í risi er aukaherbergi sem ekki er talið með í fermetrafjölda eignar. Þá fylgir eigninni byggingaréttur fyrir 18,7 fm bílskúr sem er innifalinn í skráðri stærð.

Á jarðhæð er bjart og opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa mynda samfellda og þægilega heild. Þar er einnig eitt svefnherbergi, gestasnyrting og þvottahús með góðu aðgengi. Á efri hæð er rúmgóð sjónvarps- eða fjölskyldustofa, þrjú svefnherbergi og fallegt, hlýlegt baðherbergi sem hefur verið nýlega endurnýjað. Í risi er gott aukarými sem nýtist sem svefnherbergi, skrifstofa eða tómstundaherbergi.

Eignin býður samtals upp á fimm svefnherbergi og tvær stofur og hentar því afar vel fyrir stærri fjölskyldur eða þá sem vilja mikið og fjölbreytt rými. Lóðin er snyrtileg og vel frágengin. Fyrir framan inngang er hellulagður reitur sem hentar vel fyrir garðhúsgögn og grill á sólríkum dögum en er einnig með snjóbræðslu fyrir veturinn. Meðfram húsinu er grasflöt og á baklóð er góður pallur til útivistar. Í garði er einnig geymsluskúr sem nýtist vel fyrir hjól og verkfæri. Frá hjónaherbergi eru svalir sem snúa til suðurs. Eignin er staðsett á rólegum og fjölskylduvænum stað í botnlanga við Setbergshamar í Hafnarfirði, með góðu aðgengi og nægum bílastæðum.

Nánari lýsing - Jarðhæð
Forstofa: Komið er inn í snyrtilegt anddyri af hellulagðri stétt. Í forstofu er gott pláss fyrir skógrind og spegil, ásamt vönduðum tvöföldum fataskáp sem tryggir gott geymslurými. Ofn er staðsettur á hægri vegg og rýmið býður upp á frekari speglapláss. Á gólfi eru fallegar steingráar flísar með gólfhita sem skapa þægilegt og hlýlegt yfirbragð.

Þvottahús: Rúmgott og vel skipulagt þvottahús með steingráum flísum á gólfi. Þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara ásamt aðstöðu til að hengja upp þvott. Undir glugga með opnanlegu fagi er innrétting með vaski og góðu skápaplássi.

Svefnherbergi / skrifstofa:  Bjart og notalegt herbergi með góðum glugga. Rýmið hentar vel sem svefnherbergi eða heimaskrifstofa, með plássi fyrir rúm, skrifborð eða fataskáp. Á gólfi er ljóst parket.

Gestasnyrting: Smekkleg gestasnyrting með steingráum flísum á gólfi og hvítri innréttingu með steingrárri borðplötu. Undir vaski eru tvær rúmgóðar skúffur og fyrir ofan er stór og vel lýstur spegill. Gott fráleggspláss er við vask. Salerni, skápur og veggskápar auka geymslumöguleika.

Alrými – eldhús, stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými sem sameinar eldhús, stofu og borðstofu á fallegan og hagnýtan hátt. Í stofu er ljóst parket en í eldhúsi og borðstofu eru steingráar flísar með gólfhita. Stórir gluggar og útgengt er á pall sem eykur birtu og tengingu við útisvæði. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og er hjarta heimilisins.

Eldhús: Stílhreint og vel skipulagt eldhús með miklu skápa- og vinnuplássi. Hvítar skáphurðir og skúffur ásamt steingráum borðplötum skapa nútímalegt yfirbragð. Eldhúsið er útbúið eyju með setplássi, helluborði með ofni undir og góðu geymslurými. Tvöfaldur vaskur er staðsettur undir glugga og gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél.

Nánari lýsing – Efri hæð
Stjónvarps- fjölskyldustofa: Rúmgóð og björt stofa með góðu plássi fyrir stóran hornsófa og sjónvarp. Stór gluggi tryggir ríkulega birtu sem gerir rýmið einnig vel fallið fyrir lestur og aðrar tómstundir. Notalegt fjölskyldurými sem auðvelt er að laga að mismunandi þörfum.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðu plássi fyrir hjónarúm og náttborð beggja vegna. Fataskápur er á vegg og rýmið býður einnig upp á möguleika fyrir snyrtiborð, barnarúm eða kommóðu. Stór gluggi með opnanlegu fagi tryggir góða birtu og úr herberginu er útgengt á sólríkar suðursvalir. Á gólfi er ljóst parket.

Barnaherbergi 1: Mjög rúmgott og bjart herbergi með góðu skipulagi. Þar er pláss fyrir rúm, skrifborð, kommóðu og fataskáp. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Ljóst parket á gólfi.

Barnaherbergi 2: Svipað að stærð og skipulagi og barnaherbergi I. Bjart og rúmgott með pláss fyrir rúm, skrifborð og geymslulausnir. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Ljóst parket á gólfi.

Baðherbergi: Fallegt og hlýlegt baðherbergi með stórum sandlituðum flísum á gólfi og Fibo baðplötur á veggjum. Stílhrein viðarinnrétting með fjórum rúmgóðum skúffum undir vaski og háum skáp við hliðina. Yfir vaski er stór og vel lýstur spegill og gott fráleggspláss. Upphengt salerni, sturtuklefi og handklæðaofn auka þægindi.

Svalir: Sólríkar suðursvalir með útgengi frá hjónaherbergi sem bjóða upp á notalega útiveru og góða birtu yfir daginn.

Ris: Stórt rými undir súð með stórum opnanlegum þakglugga sem hleypir inn mikilli birtu. Inn af risi er einnig geymsla og ljósgrátt teppi er á gólfi. Þetta er rými sem hefur mikla nýtingarmöguleika.

Annað
Garðhús (10fm) er staðsett í garði við inngang og notast sem geymsla fyrir hjól og verkfæri. Rafmagn er í húsinu.

Byggingaréttur: fylgir eigninni fyrir 18,7 fm bílskúr sem ekki hefur verið byggður.

Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Setbergi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytta útivist. Svæðið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna vegna góðs aðgengis, öryggis og nálægðar við alla helstu þjónustu. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/01/202266.600.000 kr.86.000.000 kr.170.6 m2504.103 kr.
25/11/201128.450.000 kr.34.500.000 kr.170.6 m2202.227 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fjólulundur 8
Bílskúr
Skoða eignina Fjólulundur 8
Fjólulundur 8
300 Akranes
168.1 m2
Parhús
523
689 þ.kr./m2
115.800.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 304
Baughamar 3 íb. 304
221 Hafnarfjörður
91.5 m2
Fjölbýlishús
32
847 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 201
Baughamar 3 íb. 201
221 Hafnarfjörður
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 íb. 502
Bílskúr
Hnjúkamói 16 íb. 502
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
412
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin