ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Hamravík 12Bjart og mjög vel skipulagt parhús í nýju hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús klætt að utan með báruáli og Stac Bond álklæðningu í bland, þak er kraftsperruþak klætt með bárujárni.
Heildarstærð hússins er 184,3m2 og er sambyggður bílskúr 34,3m2 þar af.
Að innan skiptist húsið í forstofu, 2 baðherbergi, þvottahús 4 svefnherbergi stofu og eldhús auk bílskúrs.
Mikið hefur verið lagt í innréttingar, hljóðdúkur er í loftum, allar innréttingar eru frá HTH og borðplötur eru corestone frá HTH, blöndurnartæki á baðherbergjum eru innbyggð og fl.
Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð, flísar eru á gólfi.
Herbergin eru 4, öll parketlögð, fataskápar eru í barnaherbergjunum en fataherbergi er innaf hjónaherbergi.
Aðalbaðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er góð innrétting, gólfsturta og baðkar.
Minna
baðherbergið er flísalagt en þar er lítil innrétting og gólfsturta.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými parket er á gólfi. Stór og vönduð innrétting er í eldhúsi. Í borðstofu er rennihurð út á lóð.
Þvottahúsið er með epoxy á gólfi en þar er góð innrétting.
Bílskúr er klæddur og málaður, epoxy er á gólfi. Geymsluloft er í hluta bílskúrs.
Í heildina er um að ræða mjög vandað og vel innréttað hús í nýju hverfi á Selfossi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is