Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
80 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.000.000 kr.
Fermetraverð
487.500 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
106150426
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *BJÖRT OG FALLEG ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ STÓRUM SUÐUR GARÐI* *TVÖ SÉR STÆÐI Á LÓÐ* *102FM SUÐUR GARÐUR* *GLÆSILEGUR SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *FULLBÚIN HÚSGÖGNUM*

Eignin er einstaklega björt og falleg, með góðum innréttingum og fullbúin gæða húsgögnum. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og annað þeirra með útgengi út í garð. Tvö baðherbergi, rúmgóð og snyrtileg með sturtu. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými, og með útgengi út í garð. Garðurinn er stór, 102 fm, þar sem hægt er að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Frá sér garði eru nokkur skref út í stóran og fallegan sundlaugargarð. Inni á lóð er bílastæði, og einnig fylgir annað stæði inni á sameiginlegri lokaðri lóð, einungis nokkrum skrefum frá eigninni. Eigninni fylgir mjög rúmgóð sér geymsla.
Eignin er 80 fm og garðurinn er 102 fm, samtals 182 fm.
Eignin er staðsett á hinu vinsæla Dona Pepa svæði í Ciudad Quesada, stutt í alla þjónustu, verslanir og veitingastaði. Vandaður og fallegur, vel hirtur lokaður sundlaugargarður með góðri sameiginlegri sólbaðsaðstöðu.

Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869


Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Um 30-40 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante.
Göngufæri við heilsugæslustöð, matvöruverslanir, góða veitingastaði og miðbæ Ciudad Quesada.
 
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, air con, húsgögn, sérstæði, sérlóð, stór lóð, suður,
Svæði: Costa Blanca, Dona Pepa, Quesada,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106150426

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 55
Bílskúr
Skoða eignina Skipholt 55
Skipholt 55
105 Reykjavík
117.4 m2
Fjölbýlishús
413
681 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Miklabraut 58
Skoða eignina Miklabraut 58
Miklabraut 58
105 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
312
658 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Fellsmúli 18
Skoða eignina Fellsmúli 18
Fellsmúli 18
108 Reykjavík
105.4 m2
Fjölbýlishús
413
625 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Dunhagi 18
Skoða eignina Dunhagi 18
Dunhagi 18
107 Reykjavík
48.2 m2
Fjölbýlishús
211
1222 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin