Fasteignaleitin
Skráð 26. jan. 2022

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
131 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
49.100.000 kr.
Fermetraverð
374.809 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
923260122
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Góð verönd og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGOTT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS*-*FRÁBÆR STAÐSETNING*

Rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum, vel staðsett á La Finca golfsvæðinu. Góður sér garður með og frábærri aðstöðu bætir verulega við notkunarrýmið.  Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými. 3 svefnherbegi og 2 baðherbergi + gestasnyrting. Verönd út frá borðstofu og stórar svalir á efri hæð með frábæru útsýni. 

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869


Frábær staðsetning, fallegt umhverfi, örstutt frá hinum vinsæla La Finca golfvelli auk þess sem ótal fleiri golfvellir eru í næsta nágrenni. 
Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði
.
 
Um 20-30  mín akstur frá flugvellinum í Alicante og ca. 15 mín akstur á fallega strönd.

Sérlega notalegt og rúmgott fjölskylduhús á frábærum stað. Frábær kaup.

Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa með arin og borðstofa vel tengd eldhúsi með góðri innréttingu. Frá borðstofu er útgengi út á góða verönd sem er vel tengd sér garði með góðri aðstöðu. Tvö svefnherbergi með skápum. Baðherbergi. Gert er ráð fyrir þvottavél í eldhúsi, en einnig hægt að hafa þvottavél í sér rými, þar sem gert er ráð fyrir gestasnyrtingu.

Á efri hæðinni er svefnherbergi með skápum og sér baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir með góðu útsýni.
Lóðin er rúmgóð og bílastæði fyrir bíl inn á lóðinni. Einnig eru sameiginleg bílastæði framan við húsið. Sameiginlegur sundlaugargarður.

Húsið hefur fengið gott viðhald og með smá nostri getur það orðið sérlega glæsilegt. Afhendist með húsgögnum eftir samkomulagi.

Hér er um að ræða rúmgott  einbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað á frábæru verði.  Góð kaup miðað við stærð og staðsetningu.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Verð  339.000 Evrur + kostn. eða ISK 49.100.000,- (gengi 1Evra=145 ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar:verönd, svalir, sér garður, bílastæði, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Berjateigur 35
Skoða eignina Berjateigur 35
Berjateigur 35
250 Garður
81.9 m2
Raðhús
312
653 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 16
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 16
Akurgerði 16
190 Vogar
230.2 m2
Einbýlishús
614
404 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 99
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bílskúr
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bleikjukvísl 2
110 Reykjavík
420.9 m2
Einbýlishús
1135
520 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin