****EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA****
Hrafnkell á Lind kynnir þetta fallega og vel skipulagða fjölskylduhús með stórri lóð og möguleiki á aukaíbúð.
Eignin stendur við Holtagerði 45 á þessum eftirsóknarverða stað á Kársnesinu.- Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með mikilli lofthæð og fallegu útsýni
- Lóðin er mjög falleg, 787 fm. gróinn og í rækt. Lóð sem býður upp á mikla möguleika og ævintýri
- Möguleiki er á að gera aukaíbúð á jarðhæð sem væri þá um 60 fm tveggja herbergja íbúð
- Stór tvöfaldur 40 fm bílskúr sem er að hluta til nýttur sem herbergi
- Fallegt útsýni er af annari hæð og ekkert hús stendur á móti í götunni sem gerir góða fjarlægð í nærliggjandi hús
- 5 svefnherbergi og 2 baðherbergi
- Stórar suðursvalir
Stutt er í skóla, verslun og þjónustu og skemmtileg útivistarsvæði.Fyrsta hæð: íbúð 67,4 fm og bílskúr 40,3 fm. Samtals 107,7 fm.Skiptist í anddyri, þvottahús, baðherbergi með gufubaði, herbergi með sérinngang og herbergi sem er hluti af bílskúrnum.
Anddyrið er með flísum á gólfi og innangengt í bílskúrsrýmið.
Bílskúrinn er rúmgóður og er að hluta nýttur sem herbergi. Auðvelt að breyta til baka og hafa innangent í bílskúr frá anddyrinu.
Þvottahúsið er með flotuðu og máluðu gólfi með góðri innréttingu og gluggi með opnanlegu fagi.
Herbergi er með sérinngang og anddyri.
Baðherbergi I er mjög rúmgott með flísum á gólfi og gufubaði. Þaðan er gengið inn í sólhús og er þar heitur pottur, úr sólhúsinu er gengið út á verönd og í garðinn.
Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslukerfi.
Önnur hæð: 118,6 fm.Skiptist í eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi.
Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með mikilli lofthæð útgengt á svalir til suðurs
Eldhúsið er rúmgott með fallegu útsýni og góðum borðkrók.
Baðherbergi II er flísalagt með baðkari.
Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi og parket á gólfi.
Svefnherbergi er með parket á gólfi
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Húsið er byggt árið 1980 og er að mestu leiti upprunalegt en fengið mjög gott viðhald og er í góðu ástandi.
Húsið var málað að utan vorið 2023
Í sumar var sett nýtt gler í alla glugga á efri hæð suðurhliðar
Ofnar að hluta hafa verið endurnýjaðir.Holtagerði 45, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 206-2484 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Holtagerði 45 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-2484, birt stærð 226.3 fm.
Nánari upplýsingar veitir
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is.
Atli Karl Pálmason aðstoðarmaður fasteignasala / 6624252 / atli@fastlind.is
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.