RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Laugarnesveg 48, íbúð 0201 fnr. 201-8705 - LAUS VIÐ KAUPSAMNINGÍbúðin er skráð hjá þjóðskrá 177,9 fm og er hæðin skráð 120,5 fm, þvottahús og geymsla í kjallara er skráð 7,4 fm og svo bílskúr 50 fm. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. íbúðin er á efstu hæð í húsi með tveimur hæðum og kjallara. Skráð byggingarár er 1960 og er húsið steinsteypt. Skoðið eignina hér að neðan í þrívídd og einnig er teikning af skipulagi íbúðar þar sem ljósmyndirnar eru.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3D
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Steyptar tröppur upp að inngangi í íbúðina sem er frá 2. hæð.
Forstofa: Teppalagður stigi liggur frá neðri forstofu upp að efri forstofu og þar er fatakápur.
Hol: Parket á gólfi. Þetta rými er í dag notað sem borðstofa.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir sem snúa í suður.
Eldhús: Flísar á gólfi. Rúmgóð innrétting á þremur veggja. Spansuðuhelluborð með gufugleypi yfir. AEG bakaraofn í vinnuhæð.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Fataskápur.
Barnaherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja. Fataskápur er í öðru herbergjanna.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Baðkar með sturtutæki og hengi. Gluggi er í rýminu.
Þvottahús/Geymsla: Er í kjallara og er skráð 7,4 fm. Einnig er sameiginlegt hitaherbergi í kjallara.
Bílskúr: Bílskúr er sameiginlegur en skráður eignarhlutur íbúðar er 50 fm í skúrnum samkv. þinglýstum eignarskiptasamningi.
Laugarnesvegur 48 er virkilega falleg hæð á frábærum stað í Reykjavík. Sérinngangur er í íbúðina. Til stendur að steina húsið að utan vor/sumar 2025 og munu seljendur greiða fyrir þá framkvæmd. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is
- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.