Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Garðabraut 45

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
113 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
485.841 kr./m2
Brunabótamat
51.400.000 kr.
Byggt 1973
3. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
21007752
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja 113,0 fm endaíbúð á 3. hæð við Garðabraut 45 á Akranesi, í fjölbýlishúsi sem hefur fengið umfangsmikið utanhússviðhald á síðustu árum. Eigninni tilheyrir auka herbergi í kjallara sem er 20,9 fm að stærð. Sér inngangur er í íbúðina af svölum. Íbúðin er með þremur góðum svefnherbergjum og rúmgóðu alrými með eldhúsinnréttingu sem endurnýjuð var fyrir nokkrum árum ásamt innihurðum, harðparketi og baðinnréttingu. Fallegt útsýni er úr íbúðinni og góðar svalir í suður. Frábær staðsetning í örstuttu göngufæri við grunnskólann Grundarskóla, leikskóla og Akraneshöllina íþróttamiðstöð.

Íbúðin er 92,1 fm og geymsla/herbergi í kjallara er 20,9 fm, samtals birt stærð 113,0 fm. Eignin skiptist í anddyri, geymslu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu/herbergi í kjallara. 

✅ Björt og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð
✅ Auka herbergi/geymsla í kjallara 
✅ Sér inngangur af svölum
✅ Umfangsmikið utanhússviðhald á húsinu árin 2021 og 2022
✅ Frábær staðsetning miðsvæði á Akranesi


Nánari lýsing
Forstofa: Fataskápur, harðparket á gólfi. 
Alrými: Með eldhúsi, stofu og borðstofu í sameiginlegu rými, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í vestur. 
Eldhús: Svört innrétting með góðu geymsluplássi, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir yfir og tengi fyrir uppþvottavél. Góð eyja í eldhúsi sem skúffum. 
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins, öll nokkuð rúmgóð, stór fataskápur í hjónaherbergi,  fatahengi í öðru barnaherberginu og minni skápur í hinu. 
Baðherbergi: Með salerni, baðinnréttingu, baðkari með sturtu yfir. Fyrir innan er opið að þvottaherbergi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. 
Geymsla/Herbergi: Staðsett í kjallara með tveimur opnanlegum gluggum og harðparketi á gólfi. Sameiginleg salernisaðstaða. Hjóla- og vagnageymsla í sameign.  

Húsfélag og framkvæmdir
Á árunum 2021 og 2022 fóru fram um umfangsmiklar utanhússviðgerðir skv. útboðslýsingu Verkís. Húsið var háþrýstiþvegið, múrviðgert og málað í ljósgráum lit, auk þess sem skipt var um gler og opnanleg fög í fjölda íbúða og sameign. Heildarkostnaður framkvæmda nam um 26,7 m.kr. sem hefur bætt ástand hússins verulega. Framundan eru minni viðhaldsverkefni og endurbætur á sameign og lóð, m.a. varðandi leiksvæði, girðingu, lagnir og almennt viðhald.

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi en hún er í útleigu í dag. 

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallengi 13
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:22. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vallengi 13
Vallengi 13
112 Reykjavík
91,5 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 210
Opið hús:18. okt. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 210
108 Reykjavík
132,7 m2
Fjölbýlishús
423
1017 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 404
Opið hús:18. okt. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 404
108 Reykjavík
120,8 m2
Fjölbýlishús
322
1042 þ.kr./m2
125.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 28 - 201
Efsta hæð
Hleðslustöð
Dalsbraut 28 - 201
260 Reykjanesbær
106,9 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin