Hamarsgata 13, Fjarðabyggð: Einbýlishús á einni hæð með sérstæðum bílskúr í rólegum botnlanga utarlega í bænum á Fáskrúðsfirði, með útsýni yfir fjörðinn og fjöllin. Húsið var endurnýjað að innan og klætt að utan um 2020, fyrir tíð núverandi eigenda.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isEignin skiptist upp í anddyri, gang, eldhús með borðkrók, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með útgangi og lítilli geymslu inn af. Neðan við húsið, við götuna, er 30,3 m² bílskúr.
- Endurnýjað að innan og klætt að utan um 2020
- Eldhús með innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók við glugga
- Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtu
- Þvottahús með sérútgangi
- Sérstæður bílskúr við götu
- Timburpallur við inngang, girt lóð með grasflöt
- Útsýni yfir fjörðinn og fjöllin
- Rólegur botnlangi
SKIPULAG EIGNAR:Anddyri: Flísalagt, með fatahengi og rafmagnsofni. Útihurð með glerröndum.
Gangur: Parket á gólfi, tengir saman stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Skápur í gangi.
Eldhús: Flísalagt. Ljós viðarinnrétting á tveimur veggjum með flísum á milli skápa, eldavél og pláss fyrir ísskáp. Borðkrókur við glugga með útsýni yfir fjörðinn.
Stofa: Parket á gólfi, innfelld hilla í vegg, gluggi með útsýni yfir fjörðinn.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 (aukaherbergi): Minnsta herbergið, nýtist sem svefnherbergi, fataherbergi eða vinnurými. Klætt var yfir glugga herbergisins að utan þegar húsið var klætt.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni, hvít vaskinnrétting með skápum og spegilskápur.
Þvottahús: Með sérútgangi og lítilli geymslu inn af.
Bílskúr: 30,3 m² steyptur bílskúr, byggður 1979, sérstæður neðan við húsið við götuna. Frárennsli í gólfi og vatnslagnir til staðar en ótengdar. Malarplan við bílskúr.
Lóð og ytra byrði: 502 m² leigulóð. Húsið er bárujárnsklætt með valmaþaki. Timburpallur með tröppum við inngang, girt grasflöt og hleðsla við götu. Sorptunnur við bílskúr.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSkráning eignarinnar skv. HMS:Fasteignanúmer: F2177926
Stærð: Einbýlishús, birt stærð 120,5 m² (íbúð 90,2 m² og bílskúr 30,3 m²)
Byggingarár: 1957 (íbúð), 1979 (bílskúr)
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 33.850.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 34.400.000 kr.
Brunabótamat: 59.650.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, leigulóð, stærð lóðar er 502,0 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði