Fasteignaleitin
Skráð 27. sept. 2026

Vallarhús 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
129.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
766.564 kr./m2
Brunabótamat
77.600.000 kr.
Byggt 1990
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20407747
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

HRINGIÐ OG BÓKIÐ SKOÐUN   -   129,8 fermetra endaraðhús með glæsilegum sérafnotareit í kringum húsið. Húsið er tvær hæðir og ris, efri hæð og ris talsvert undir súð, þannig að gólfflötur er meiri en skráning gefur til kynna; jarðhæð er skráð 68,9 fermetrar, efri hæðin 51,6 og rishæðin 9,3 fermetrar. Stofa, snyrting, þvottahús og eldhús á jarðhæð, baðherbergi og þrjú herbergi á efri hæð, risið má nýta sem herbergi. Lóð kringum húsið er glæsilega frágengin með pöllum, skjólveggjum og geymsluhúsi. Seljendur skoða skipti á þriggja herbergja íbúð. Húsið er í slæmu Ástandi að innan eftir að hafa verið í útleigu í nokkurn tíma.

Nánari upplýsingar veita Rögnvaldur Örn Jónsson, lgfs.í síma 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is eða Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs.í síma 663-2508, olafur@eignamidlun.is
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Húsið er í innri enda fjögurra húsa raðhúsalengju og er þess vegna mjög útaf fyrir sig. Húsið hefur yfir að ráða stórum sérafnotareit á lóð sem nær umhverfis húsið á þrjár hliðar. Vandaðir skjólveggir, sólpallar og geymsluskúr hafa verið byggðir um allan reitinn.
Gengið er inn á jarðhæð hússins, þar sem er forstofa, snyrting, þvottahús, eldhús og stofa. Forstofan er rúmgóð, gráar flísar á gólfi. Til vinstri þegar gengið er inn úr forstofu er þvottahús með flísum á gólfi, með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask, vinnuborð, og hillur. Gegnt þvottahúsinu er snyrting með innréttingu og flísum á gólfi, en á veggnum milli þvottahúss og baðs er fatahengi sem nýtist mjög vel.
Stofan er björt, með gluggum í átt að garði og svaladyrum sem opnast út á pall. Á gólfum í stofu og eldhúsi eru hlýlegar drapplitar steinflísar.
Eldhúsinnrétting er hvít en illa farin. Góð birta, góð vinnuaðstaða og pláss fyrir fjölskylduna einkenna eldhúsið.
Milli stofu og eldhúss er stigi upp á efri hæð hússins. Stiginn er opinn tréstigi sem birta flæðir í gegnum, rými undir stiga nýtist sem geymslupláss.
Á efri hæð eru tvö barnaherbergi og hjónaherbergi, öll mjög rúmgóð. Á hæðinni er stórt flísalagt baðherbergi með bæði baðkari og sturtu. Á gólfum í herbergjum og holi efri hæðar er málaður linoleumdúkur. Úr holinu er stigi upp í risið, þar sem er herbergi sem að mestu er undir súð en nýtist afar vel. Teppi á gólfi í risherbergi.
Við útidyr hússins er gengið í útigeymslu þar sem er gott pláss fyrir reiðhjól og barnavagna ásamt öðru. Mjög mikil vinna hefur farið í lóðina, en timburgirðing er utan um allan garðinn, sólpallar kringum allt húsið en þó sérstaklega til suðurs, og gott geymsluhús þar sem má geyma garðhúsgögn, reiðhjól og fleira.

Hér er um að ræða afar vel nýtta eign með góðri lóð. Frábærlega staðsett fjölskyldueign sem nauðsynlegt er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambamýri 5
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:28. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Lambamýri 5
Lambamýri 5
225 Garðabær
114.1 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Skipalón 12
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Skipalón 12
Skipalón 12
220 Hafnarfjörður
131.5 m2
Fjölbýlishús
423
866 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Vallargata 4
Efsta hæð
Skoða eignina Vallargata 4
Vallargata 4
230 Reykjanesbær
109.8 m2
Fjölbýlishús
413
592 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 4
Efsta hæð
Skoða eignina Risadalur 4
Risadalur 4
260 Reykjanesbær
115.8 m2
Fjölbýlishús
43
690 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin