-Suðursvalir með góðu útsýni
-Merkt bílastæði
-Nálægt náttúru
-Laus straxÍbúðin er 57,5 fm samkvæmt HMS.
Skráð á 2. hæð, en er á sömu hæð og gengið er inn frá bílastæði.
Húsið er steinað að utan og sameignin er snyrtileg.
Myndavéladyrasími hefur verið settur upp í öllu húsinu.
Þakið er nýlega yfirfarið.
Parket er á öllum gólfum í alrými og herbergi.
Baðherbergi er flísalagt.
Góð staðsetning í Árbænum þar sem er stutt í einstaka náttúru í Elliðaárdalnum og Víðidal.
Hugguleg eign á góðum stað sem hentar mörgum og gætu verið kjörin fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Gengið er inn í parketlagða
forstofu með fataskáp.
Tengist beint í
hol sem bindur saman alrými og herbergisálmu.
Eldhús er parketlagt, með hvítri eldhúsinnréttingu, bakaraofni, hellum og viftu.
Stofa er parketlögð, opin og björt. Úr henni er útgengt út á svalir með góðu útsýni.
Svefnherbergi er parketlagt með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og á vatnsálagsstöðum. Útbúið hvítri vaskinnréttingu með skápum, baðkari með sturtu og glerskilrúmi, speglaskáp og hvítu salerni.
Sérgeymsla er í sameign.
Þar er einnig sameignlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Snyrtileg og stór sameigingleg lóð.
Grunnskóli og leikskóli í göngufæri.
Göngu- og hjólaleiðir allt um kring og stutt í alla helstu þjónustu.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.