Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun. Nýtt og vandað staðsteypt 220,6 fm parhús á útsýnisstað með innbyggðum bílskúr.
Eignin Akrakór 5B er hús á tveimur hæðum og er efri hæð klædd og einangruð að utan að hluta með álklæðningu, neðri hæð og innan af svölum á efri hæð er sjónsteypa. Samkvæmt teikningu skiptist neðri hæð í forstofugang með útgönguhurð, þvottahús, 3 svefnherbergi, baðherbergi með útgönguhurð til suðurs þar sem gert verður ráð fyrir heitum potti og innbyggður rúmgóður bílskúr með geymslu inn af. Neðri hæð hefur verið innréttuð og tekin í notkun. Efri hæð skiptist í eldhús / borðstofu, stofu, baðherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Fasteignasali í síma 822-2225, tölvupóstur thora@fstorg.is.Sækja söluyfilrit hérNánari lýsing: Neðri hæð hefur verið innréttuð, á hæðinni er
forstofa / hol,
3 svefnherbergi öll rúmgóð og með fataskápum, vínilparketi á gólfum,
baðherbergi er fullgert og flísalagt vönduðum flísum frá Epson, vönduð innrétting frá Formus með góðu skápaplássi, flísalögð stór sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn, frá baðherbergi er hurð út á lóðina.
Þvottarými er í bílskúr með góðri innréttingu og vaski. Gólfhiti er kominn á neðri hæð og búið að tengja í hitagrind. Fljótandi stigi milli hæða.
Efri hæð skiptist í eldhús / borðstofu þar sem gert er ráð fyrir stórri eldhúseyju, stofu, baðherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Stór rennihurð út á 21,9 m2 suður svalir með hitalögnum í svalagólfinu ásamt gönguhurð úr eldhúsi, í stofu er glæsilegur stór útsýnis horngluggi án gluggapósta til að útsýnið njóti sín óskert, gólfsíðir gluggar eru í flestum rýmum sem gefa góða birtu. Gert er ráð fyrir arni í stofu, aðrar svalir úr holi beint á móti stiga.
Húsið er skráð á byggingarstig B2 Fokhelt en matsstig 8 Tekið í notkun í byggingu, þó kemur í ljós við skoðun að fráveitulagnir og neyslulagnir eru komnar upp á efri hæðina en ótengdar og loftræstikerfi er ófullgert. Hitalögn er komin í gólf á efri hæð en ótengt í hitagrind.
Lóð er grófjöfnuð að framan en búið að tyrfa að aftan og að hluta suðvestan við húsið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.