Fasteignaleitin
Skráð 14. maí 2024

Djáknavegur 3

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
126 m2
4 Herb.
Verð
65.000.000 kr.
Fermetraverð
515.873 kr./m2
Fasteignamat
80.300.000 kr.
Brunabótamat
69.050.000 kr.
Fasteignanúmer
2346341
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Um er að ræða sumarhús í Úthlíð, Djáknavegur 3, en birt heildarstærð er 126m2. Stór suðurverönd með heitum potti er við húsið og nær pallurinn meðfram vestur og austurhlið að hluta. Gengið er inn í húsið af vesturverönd. Óhindrað útsýni er úr húsinu til fjalla og yfir nærsveitir. 

Húsið er byggt á sökkli og með steyptri gólfplötu og hita í gólfum.
Húsið var tekið í notkun 2020 og er það klætt að utan með lerki, gluggar eru úr PVC og járn á þaki er með innbrenndu lakki sem gerir húsið viðhaldslétt. Gólfhiti er í húsinu og led lýsing sem hægt er að stýra með fjarstýringu. Falleg lýsing með kubbaljósum er utan á húsinu.  Skv. birtum fm frá HMS er neðri hæðin 79,3 fm og efri hæðin 46,7 fm sem er að hluta til undir súð þ.a gólfflötur er stærri en uppgefnir fermetrar.

Skipulag eignar:
Neðri hæð: forstofa, alrými með eldhúsi og stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi. 
Efri hæð: Hjónaherbergi með sérbaðherbergi og setustofa/svefnloft.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri og gangur með flísum á gólfi og  í fatahengi.
Stofa í alrými er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Úgengt er á suðurverönd í gegnum stóra rennihurð. Gönguhurð er út á austurverönd. 
Eldhús er í alrými með harðparketi á gólfi. Ljós falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum gólfi og veggjum, ljós falleg innrétting og efri speglaskaápum og tengi fyrir þvottavél.
tvær geymslur á neðri hæð.
Efri hæð:
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og stórum opnanlegum þakglugga og sérbaðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu, ljós innrétting með skúffum og handlaug, upph.wc.
Setustofa/svefnloft með harðparketi á gólfi og led lýsingu ásamt lýsingu undir súð. 
Geymsla er undir súð.

Sumarhúsið stendur í sumarhúsahverfi í Úthlíð en á svæðinu er m.a. 9 holu golfvöllur og ferðaþjónusta rekin á svæðinu. Í næsta nágrenni eru til að mynda 3 golfvellir og einungis stutt ganga til þess að njóta útivistar og göngu í ósnortinni náttúru í Úthlíðarlandi. 

Eignin er í talsverðri útleigu fram að áramótum en eignin skilar fínum tekjum þegar hún er fullbókuð. Nýr eigandi getur yfirtekið leigusamning og afhending getur farið fram við kaupsamning.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 124
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 124
Hraunbær 124
110 Reykjavík
65.7 m2
Fjölbýlishús
211
805 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 11
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 11
Dugguvogur 11
104 Reykjavík
78.3 m2
Fjölbýlishús
312
893 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin