** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **FastMos ehf. kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á fyrstu hæð við Jörfabakka 8. Eignin er skráð 112,5 m2, en þar af íbúð 94,7 m2, geymsla 15,7 og föndurherbergi 10,8 m2 (auka herbergi). Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, tvennar svalir, geymslu í kjallara og auka herbergi í kjallara með sér sturtu og sameiginlegu salerni. Herbergið er í útleigu og gefur því góðan möguleika á leigutekjum. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Hol með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt er á suðvestur svalir.
Eldhús er með flísum á gólfi, elhúskrók, hvítri háglans innrétting og hvítum flísum á milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu en ísskápur og eldavél standa við hlið innréttingar. Háfur er fyrir ofan eldavél.
Þvottahús/búr er inn af eldhúsi með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með parket á gólfi og góðum fataskáp. Útgengt er á svalir.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með hvítri innréttingu, salerni, handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni.
Auka herbergi er í kjallara með parket á gólfi, opnanlegum glugga og sér sturtu. Aðgengi að sameiginlegu salerni er í sameign. Herbergið er í útleigu í dag.
Sérgeymsla er
í kjallara.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
* Gegnheilt parket á íbúð var slípað og lakkað 2022.
* Nýlegt salerni á baðherbergi.
* Þak hússins var endurnýjað sumarið 2023 skv. upplýsingum frá húsfélagi.
Verð kr. 67.900.000,-