FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: 104,2 fm, fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð (gengið upp einn stiga). Íbúðin skiptist í anddyrishol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Útgengt er á svalir frá stofu. Geymsla og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, búðir og samgöngur. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is
Nánari lýsing: Íbúð 96,4 fm, geymsla 7,8 fm, samtala 104,2 fm. Stæði í lokuðum bílakjallara.
Komið er inn í anddyri sem tengir öll rými íbúðar.
Eldhús er með grárri og svartri innréttingu með efri og neðri skápum, viðarlitaðri borðplötu, bakaraofn í vinnuhæð og eldavél með háfi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Stofa er rúmgóð og björt, með útgengi á suðursvalir og glugga til suðurs. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni.
Baðherbergi er með nettri, grárri skúffueiningu undir handlaug, efri speglaskáp og baðkar með sturtu. Ljósar flísar á gólfi. Þvottahús með hillum er innan íbúðar, með ljósum flísum á gólfi.
Gólfefni á íbúð er harðparket og flísar.
Geymsla er í sameign og einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Falleg og björt fjölskylduíbúð þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og verslanir.
Það sem hefur verið gert að sögn seljanda:
2018-2019: Múrviðgerðir á ytra byrði, viðhald á þaki og skipt um flesta glugga. Steypuviðgerðir á svæði fyrir framan blokk.
**Framkvæmdir eru hafnar á bílskýlinu og nýir eigendur munu taka yfir greiðslum vegna þeirra. Heildarkostnaður vegna verksins er 1.473.896 sem skiptist niður á fjórar greiðslur. Verklok er áætlað í byrjun desember.
Fyrir liggur samþykki fyrir svalalokunum, málið hefur dregist og því gætu nýir eigendur mögulega tekið þátt sé áhugi er fyrir því.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.