Vel staðsett og stórt atvinnuhúsnæði sem samanstendur af nokkrum húsum sem mynda eina heild. M.a. er um að ræða sali, frystiklefa og geymslur. Húsin standa miðsvæðis, í hjarta Reyðarfjarðar. Í heildina er hér um að ræða 2342,2 m² atvinnuhúsnæði á ríflega 11 þúsund m² lóð. Húsin mynda eins og áður sagði eina heild og er opið milli þeirra flestra. Tveir frystiklefar eru hluti af eigninni og var sá yngri byggður árið 1997, er hann 559,4 m² með góðri lofthæð. Sá eldi er ekki eins stór og með minni lofthæð þó að hún sé hátt í 4 metrar. Nokkrir fremur stórir og samtengdir salir sem áður fyrr voru vinnslusalir, verkstæði, vélasalur o.fl. eru hluti af eigninni. Tæmandi lýsingu er ekki hægt að gera á eigninni en ljóst er að kominn er tími á eitthvað viðhald og endurbætur og áhugasamir aðilar eru því hvattir til að skoða eignina vel. Eignin selst í einu lagi sem ein heild og í því ástandi sem eignin er og því er mælt með að áhugasamir aðilar skoði eignina vel með fagmanni. Tilboð óskast í eigninna! Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.