Til sölu: 184,9 m² skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á 2.h. við Álfabakka 14 í Reykjavík. Laust skv. samkomulagi.
Um er að ræða vel skipulagt húsnæði á góðum stað sem hentar fyrir ýmiss konar skrifstofu- og þjónustustarfsemi, svo sem heilbrigðisþjónustu, meðferðarstarfsemi eða aðra sambærilega starfsemi.
Gengið er inn í húsnæðið frá sameiginlegum stigagangi í rúmgóða aðkomu og biðstofu með glugga sem snýr að bílaplani hússins. Þar er jafnframt ritaraaðstaða með skrifborðum og afgreiðsluborði. Lyfta er í húsinu. Frá biðstofu er annars vegar salerni fyrir viðskiptavini, sem er með hjólastólaaðgengi, og hins vegar gangur sem liggur að meðferðarrýmum.
Af ganginum eru fjögur rúmgóð meðferðarrými, salerni fyrir starfsfólk og gluggalaust rými sem hefur verið nýtt sem tækjarými en væri jafnframt hægt að nýta sem annað meðferðarrými, skrifstofa eða geymsla. Meðferðarrýmin eru björt, með gluggum og opnanlegum fögum, handlaugum og kerfislofti. Kerfisloft er einnig á gangi og kaffistofu. Frá einu meðferðarrýmanna er útgengt á svalir sem snýr í átt að verslunarmiðstöðinni í Mjódd.
Kaffistofan er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og glugga sem snýr að bílastæði hússins. Þar er jafnframt staðsett loftræstikerfi sem tryggir loftgæði í húsnæðinu. Möguleiki er á að útbúa fleiri lokuð meðferðarrými eða skrifstofur með breytingum á innra skipulagi. Fordæmi fyrir slíkri útfærslu er að finna í húsinu. Ekki er til staðar vsk-kvöð á eigninni.
Hafðu samband við Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur ehf. fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur en 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.600.-

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.