Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynna, fallega og bjarta stúdíó íbúð með suðursvölum á 7. hæð í glæsilegu fjölbýlishúsi staðsett rétt við miðbæinn með fallegu útsýni.
Glæsileg stúdíó(áður 2ja herb., auðvelt að breyta aftur) 66.7fm íbúð á 7. hæð í vönduðu lyftuhúsi á útsýnisstað við Bríetartún 11 á Höfðatorgi í miðborginni. Íbúðin er með aukinni lofthæð, 2,68 m. Gólfhiti er í íbúðinni. Öryggiskerfi og eftirlitsmyndavélar eru á öllum inngöngum.
Komið er inn í forstofu, rúmgott baðherbergi er til vinstri, frá forstofu gangi er komið inn í opið og bjart alrými, eldhús staðsett til vinstri. Stofa og borðstofa í opnu, björtu og flæðandi rými. Áður var herbergi þar sem hluti stofu er nú og auðveldlega má setja aftur upp vegg. Yfirbyggðar svalir sem snúa í suður. Glæsilegt útsýni, m.a. í átt að Hallgrímskirkju, Perlunni og öðrum fallegum borgarkennileitum. Um er að ræða glæsilega og vel skipulagða eign, með fallegu útsýni í nýlegu lyftu húsi. Mögulegt að leigja bílastæði í bílakjallara undir Höfðatorgi.
Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Baðherbergi: rúmgott flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, "inngöngu sturta" og skápa innrétting fyrir neðan baðvask, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: parket á gólfi með vandaðri innréttingu og tækjum, ofn, helluborð, vifta og uppþvottavél fylgja íbúðinni.
Stofa- og borðstofa: bjart og opið rými, gengið út á góðar suðursvalir sem eru með svalalokun. Í stofu er búið að koma fyrir svokölluðu Murphy rúmi sem fellur auðveldlega að veggnum þar sem fataskápur var áður.
Sérgeymsla í sameign skráð 7 m2.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara og þá er möguleiki að leigja stæði í bílageymslu sem innangengt er í úr sameign.
Umrædd eign er vel staðsett í göngufæri við alla helstu verslun- og þjónustu og miðbæjarkjarna Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.