Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Jötnagarðsás 35

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
132.3 m2
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
452.759 kr./m2
Fasteignamat
47.500.000 kr.
Brunabótamat
67.140.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2011
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2214103
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar, á eftir að klára merkingar í rafmagnstöflu
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
* Gestahús/geymsla þarfnast töluverðs viðhalds. 
Kvöð / kvaðir
* Opinber skipti. 
Gjöld: Félag sumarhúsaeigenda á svæðinu: kr. 12.000,- Framkvæmdasjóður kr. 25.000,- 
Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynna: Jötnagarðsás 35, Borgarbyggð (í landi Munaðarness)   

EIGNARLÓÐ, ÚTSÝNI, HITAVEITA, MIKILL GRÓÐUR, RAFMAGNSHLIÐ VIÐ ÞJÓÐVEG. 
Bústaðurinn er skv. fasteignayfirliti frá HMS samtals skráður 132,3 m2, en þar af er Gestahús/geymsla 11,9 fm.
Á Jötnagarðsási 35 stendur myndarlegt frístundahús á steyptum sökkli á 5.000 fm eignarlóð (hálfum hektara) í Munaðarnesi, Borgarbyggð.
Lóðin er einstaklega falleg, í suðausturhalla, fullgróin trjám, runnum og fjölbreyttum blómum. Á milli gróðursins er landið þakið bláberjalyngi sem oft gefur ríkulega uppskeru. Engin sláttuvinna eða snyrting krefst viðhalds á svæðinu.
Útsýnið er stórbrotið: Skarðsheiðin blasir við ásamt fjöllunum umhverfis Borgarfjarðardali, Skorradal, Lundareykjadal, Flókadal og Reykholtsdal. Í fjarska má sjá toppa Hlöðufells, Skjaldbreiðar, Þorfinnsjökuls, Langjökuls, Eiríksjökuls og Oks.

Nánari lýsing:
Forstofa: málað gólf. 
Innigeymsla/þvottahús: geymsla inn af forstofu, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skolvask. 
Stofa: Stofan er rúmgóð og björt með mikilli lofthæð. Útsýnið er mikilfenglegt yfir Borgarfjörðinn. Útgengi á verönd sem snýr til suð-austurs.
Eldhús:  Með stofu í opnu alrými.  Eldhúsið er með hvítri IKEA eldhúsinnréttingu, með efri og neðri skápum og ágætu vinnuplássi.   
Baðherbergi: sturtuklefi upphengt salerni og handlaug. Nýleg baðinnrétting getur fylgt með. Beint útgengi af baðherbergi út í bakgarð.  
Svefnherbergi:  tvö stór svefnherbergi, paket á gólfum, eitt minna herbergi með parketi á gólfi.(eitt herbergjanna sérhannað með þarfir fatlaðra í huga). Samtals þrjú svefnherbergi.  
Bílskúr/vinnustofa, húsið stendur á steyptum sökkli sem var nýttur til að útbúa rými undir norðurenda hússins: rúmgóður bílskúr eða vinnustofa með bílskúrshurð og inngöngu hurð til hliðar. Gluggar á annarri hlið og mjög gott vinnupláss, hillur, vinnuborð og skolvaskur. 

Gestahús/geymsla: byggt árið 1993-1994, er hannað sem gestahús en þarfnast viðhalds. Innan þess er lítil innrétting, bókahillur og rúm. Getur nýst sem leiksvæði og eða svefnstaður fyrir gesti. Nettur pallur er suð-austan megin við húsið. 
Lóð og aðkoma: Húsið stendur innst í botnlanga á 5000 fm eignarlóð.  Að húsinu er gengið upp tröppur upp á rúmgóða verönd sem er staðsett fyrir framan bústaðinn. Bílaplanið getur rúmað tvær bifreiðar, en gæti rúmað fleiri sé það stækkað. 
Læst rafknúið hlið við aðganginn að svæðinu sem opnað er með fjarstýringu eða úr síma eigenda.

Að sögn eigenda hefur húsið fengið gott viðhald í gegn um tíðina en bústaðurinn var byggður árið 2011. Lagt er fyrir heitan pott með heitu og köldu vatni, frárennsli og raflögnum. Um er að ræða reisulegan og vel byggðan bústað. Í næsta nágrenni: Þjónustumiðstöð í Munaðarnesi, sundlaug í Varmalandi,  golf að Hamri í Borgarnesi og Glanna hjá Bifröst, sjoppa að Baulu Borgarnes  í ca. 15-20 mín. akstursfjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:  Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.  Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. 
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og  ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2011
120.4 m2
Fasteignanúmer
2214103
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
61.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fauskás 6
Skoða eignina Fauskás 6
Fauskás 6
311 Borgarnes
129.1 m2
Sumarhús
313
464 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarlundur 7
Skoða eignina Bjarkarlundur 7
Bjarkarlundur 7
641 Húsavík
139 m2
Sumarhús
43
415 þ.kr./m2
57.700.000 kr.
Skoða eignina Berjabraut 18
Skoða eignina Berjabraut 18
Berjabraut 18
276 Mosfellsbær
96.7 m2
Sumarhús
513
646 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Birkilundur 14
Skoða eignina Birkilundur 14
Birkilundur 14
320 Reykholt í Borgarfirði
92.6 m2
Sumarhús
2
647 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin