Fasteignaleitin
Skráð 23. júní 2026

Hrísnes 9

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
77.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
515.504 kr./m2
Fasteignamat
36.600.000 kr.
Brunabótamat
32.350.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Geymsla 3.2m2
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2278185
Landnúmer
172675
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallar
Lóð
0
Upphitun
Rafmagnskynding
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Rafmagnspottur er bilaður (bilun er ekki þekkt). Kominn er tími á að viðhald á útihurð og svalahurð út frá stofu. Sprunga er í rúðu á baði. Merki eru um raka í geymslum (bjálkahús). Starfsmanni Fasteignalands hefur ekki verið bent sérstaklega á aðra galla á eigninni.
Jón Smári Einarsson lgf. s. 860-6400 og Fasteignaland kynna: Hrísnes  9, 311 Borgarbyggð  – fallegt og vel staðsett 77,4 fm sumarhús með geymslum,  einungis um 10 mínútur frá Borgarnesi.
Um er að ræða gott sumarhús 68,3 fm, bjálkahús einangrað að utanverðu og klætt með liggjandi timburklæðningu á gróinni og fallegri 5.780 fm leigulóð. Eignin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað, stutt norður af Borgarnesi, þar sem njóta má kyrrðar og fallegrar náttúru.

Húsið skiptist: Sameiginleg forstofa og borðstofa með parketi á gólfi. Gengið er niður tvær tröppur inn í stofu með steinteppi á gólfi, þar falleg kamína, þaðan er útgengt út á sólpall. Inn af borðstofu er eldhús með parketi á á gólfi og eldavél með ofni.
Inn af eldhúsi eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Annað svefnherbergið er með tvö gistirými, það fremra er með parket á gólfi. Gengið er niður tvær tröppur niður í innra rýmið, þar er steinteppi á gólfi og útgengt út á sólpall. 
Baðherbergið er snyrtilegt, með dúk á gólfi, sturtuklefa, salerni og handlaug.

Geymsla 1: Góð geymsla (bjálkahús), 5,9 fm, þar sem gengið er inn af sólpalli.
Geymsla 2: Lítil geymsla (bjálkahús), 3,2 fm, þar sem gengið er inn af sólpalli.
Geymsla 3: um 5 fm óskráð köld geymsla með stórum hurðum og grasi á þaki, ekki er gólf í þessari geymslu.

Húsið er rafmagnskynnt og er 120L hitakútur fyrir neysluvatn.
Stór sólpallur er við húsið með girðingu og skjólgirðingu og heitum rafmagnspotti. 
Húsið stendur á steyptum dregurum á malarpúða.

Innbú fylgir með með í kaupum á eigninni utan persónulegra hluta.

Lóð og aðkoma
Lóðin er einstaklega falleg, gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám. Innkeyrsla með plássi fyrir um tvo bíla.

Eignin Hrísnes 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 227-8185, merkt 01-01, birt stærð 77.4 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Stutt í golf á Hamri eða Glanna, sund á Varmalandi, verslun/veitingar á Baulu, gönguleiðir og í alla verslun og þjónustu í Borgarnesi en þangað eru aðeins um 15 km. Fjarlægð frá Reykjavík er ca. 70 km
Einnig er stutt er á þekkta staði á Vesturlandi svo sem Hraunfossa, Barnafossa, Deildartunguhver, Arnarstapa, Kirkjufell, Snæfellsjökul og Stykkishólm. 

Hér er um að ræða gott og vel staðsett sumarhús á vinsælum stað, þar sem falleg náttúra, skjólgóð lóð og notalegt hús fara vel saman.
Sjón er sögu ríkari – bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.

jonsmari@fasteignaland.is
s. 860-6400


Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2007
3.2 m2
Fasteignanúmer
2278185
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.340.000 kr.
Byggt 2007
5.9 m2
Fasteignanúmer
2278185
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
2.110.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðimýri 16
Skoða eignina Víðimýri 16
Víðimýri 16
740 Neskaupstaður
142.6 m2
Fjölbýlishús
4
315 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Húsafell úti forsiða .jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128.8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurbakki 3
Skoða eignina Suðurbakki 3
Suðurbakki 3
805 Selfoss
144.2 m2
Sumarhús
413
777 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
Skoða eignina Neðstiás 11
Skoða eignina Neðstiás 11
Neðstiás 11
301 Akranes
130.5 m2
Sumarhús
514
728 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin