Miklaborg kynnir: Fallegt og sjarmerandi 190,5 fm einbýlishús með aukaíbúð sem hefur verið mikið endurnýjað og uppfært á vandaðan máta á undanförnum árum. Húsið stendur á steyptri jarðhæð og var byggt árið 1983. Eignin skiptist þannig: 1. hæð, forstofa, 2 svefnherbergi, gestasnyrting, opið eldhús og borðstofa 2. hæð, stór og björt stofa með kamínu, hjónaherbergi, baðherbergi og fataherbergi. Í kjallara er góð skrifborðsaðstaða, sjónvarpsherbergi, þvottaherbergi, baðherbergi og köld geymsla undir stiga. Ennfremur er búið að útbúa fullbúna stúdíóbúð á jarðhæð í rými sem áður var bílsskúr. Sérstæð glæsileg nýleg vinnustofa er úti í garði. Garður í kringum húsið er fallegur og hægt að ganga í hann niður af svölum. Að framan er hellulagt bílaplan sem er upphitað að hluta og með stæði fyrir tvær bifreiðar og rafhleðslustöð.
Nánari lýsing
Komið er inní flísalagða forstofu á 1. hæð með fatahengi. Á vinstri hönd er gestasnyrting og svefnherbergi. Gestasnyrting er með flísum á gólfi og veggjum. Til hægri úr forstofu er sérlega rúmgott unglingaherbergi, sem áður skiptist í tvö svefnherbergi. Opið eldhús og borðstofa með útgengi á pall og þaðan niður í garð. Úr borðstofu er stigi upp á 2. hæð, þar sem er stór og björt stofa með kamínu , suður-svalir og glæsilegt útsýni. Hjónasvíta sem samanstendur af fataherbergi og baðherbergi. Kjallari komið er niður í hol sem er notað sem skrifstofuaðstaða. Sjónvarpsherbergi sem er hægt væri að nota sem 4. svefnherbergið. Til vinstri er þvottahús með vaski og góðu skápaplássi. Til hægri er uppgert baðherbergi, með flísum á gólfi og veggjum. Innangengt er í kalda geymslu og þaðan út á bílaplan.
Stúdíóíbúð skiptist í fullbúið eldhús, alrými og baðherbergi með sturtu. Rýmið er með gluggum sem gefa góða birtu, heilspörsluðum veggjum og flotuðu gólfi (epoxy). Gólfhiti.
Vinnustofa (er ekki inni í birtum fermetrum) er vönduð og björt með gluggum sem vísa inn í garð, rafmagni og gólfhita.
Garður umhverfis húsið er gróðursæll og liggur til suðurs.
Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir
2008. Baðherbergi á efri hæð endurnýjað. Skipt um gólfefni á allri efri hæð. 2009. Gólfplata endurnýjuð og hiti lagður í gólf. Dren lagt meðfram húsi. Þakrennur og ofanvatnsleiðslur endurnýjaðar. Brunnur. Jarðvegsskipti, tré felld. Nýtt gras. 2010. Pallur smíðaður. Svalir endurnýjaðar. 2012. Baðherbergi á jarðhæð endurnýjað. 2013. Þvottahús endurnýjað. 2015. Gler í gluggum endurnýjað. 2016. Vinnustofa. Lagt rafmagn og vatn. Veggir heilsparslaðir. Hiti í gólf. Sjónflot. Epoxy. Vönduð útihurð. 2018. Bílaplan og útisvæði endurgert. Hitalögn í plan, tvö bílastæði og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl sett upp. 2019 Eldhús endurnýjað (Eirvík). Forstofa endurnýjuð, gólfefni og gólfhiti. Íbúðaraðstaða í kjallara og vinnustofa á lóð. Rafmagnstafla. 2020 Hjólaskýli og útigeymsla úr íslensku lerki
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 23/07/2007 | 36.880.000 kr. | 48.000.000 kr. | 190.5 m2 | 251.968 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 124 | Tilboð | ||
104 | 232,7 | 154,9 | ||
108 | 195,1 | 179,9 | ||
109 | 261,1 | 139,7 | ||
108 | 112,7 | 135 | ||
105 | 116,5 | 124 |