Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Njörvasund 13

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
191.9 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
185.000.000 kr.
Fermetraverð
964.044 kr./m2
Fasteignamat
145.050.000 kr.
Brunabótamat
96.040.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2020678
Landnúmer
105086
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega glæsilegt, vel hannað og töluvert endurnýjað 191,9 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með 26,3 fermetra bílskúr á glæsilegri 832,0 fermetra lóð á rólegum og eftirsóttum stað við Njörvasund í Reykjavík.

Húsið, sem er með aukinni lofthæð að hluta, er teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni og stendur á fallegri lóð með góðri aðkomu, hellulögðu bílaplani, viðarverönd, tyrfðum flötum, fallegum trjágróðri og gróðurhúsi.

Húsið hefur vakið athygli fyrir einstaka hönnun arkitekst og hafa eigendur haldið í það varðandi efni og litaval við endurbætur.


Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að á sl. árum samkvæmt upplýsingum frá seljendum:
2010 - Frárennslislagnir, drenlagnir og lóð endurgerð með stéttum með hitalögnum undir.
2020 - Hús að utan múrviðgert og málað
2020 - Raflagnir endurnýjaðar, rafmagnsinntak og rafmagnstafla
2022 - Þakpappi, þakjárn, þakrennur og niðurföll
2024 - Ný girðing á lóð 

Allar innihurðir hafa verið endurnýjaðar auk baðherbergis á aðalhæð hússins. Gegnheilt parket er á gólfum. 


Eignin er sýnd skv. samkomulagi. Bókið einkaskoðun í s: 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is


Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð með gólfhita og fatahengi.
Gangur, parketlagður.
Eldhús, parketlagt og rúmgott með gólfhita. Fallegar Alno innréttingar með flísum á milli skápa, ný tæki, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél og góð föst borðaðstaða. 
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, hiti í gólfi, upphengt wc, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri.
Hol, parketlagt, var áður herbergi og auðvelt að gera aftur.
Barnaherbergi l, parketlagt og með fataskáp.
Hjónaherbergi, parketlagt, nýjir fataskápar og útgengi á lóð hússins.
Borðstofa, parketlögð og með gólfhita, opið við stofu og með útgengi á skjólsæla viðarverönd og þaðan út á lóð. 
Stofa / sjónvarpsstofa, sem gengið er upp í um nokkur þrep úr borðstofu er parketlögð og rúmgóð með gólfsiðum gluggum að hluta og mjög fallegum arni. 

Gengið er niður á neðri hæð hússins um parketlagðan stiga með lýsingu í vevggjum.

Hol, parketlagt.
Barnaherbergi ll, parketlagt og rúmgott með fataskápum og gluggum í tvær áttir. 
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, sturtuklefi og innrétting.
Inn af baðherbergi er hitakompa og geymsla með glugga.
Þvottaherbergi, rúmgott með glugga og útgengi á lóð, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, gott vinnuborð og vaskur.

Bílskúr, sem er 26,3 fermetrar að stærð, er með rafhleðslustöð, hita, heitu og köldu vatni, rafknúinni innkeyrsluhurð, gönguhurð á hlið og kaldri útigeymslu við enda sem er ekki í fermetratölu bílskúrs. 

Húsið að utan lítur mjög vel út og hefur alla tíð fengið mjög gott viðhald. 

Lóðin, sem er 832,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin og mjög glæsileg. Á framlóð eru stór hellulögð innkeyrsla, hellulögð stétt með hitalögnum í gönguleið og stigapalli, tyrfð flöt, trjábeð, viðarverönd og gróðurhús. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað í botlanga í Voga / Sundahverfi þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1967
26.3 m2
Fasteignanúmer
2020678
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.290.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47A
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Hjallabraut 47A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Grundarland 16
Bílskúr
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grundarland 16
Grundarland 16
108 Reykjavík
196.9 m2
Einbýlishús
613
1067 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Opið hús:01. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin