Hrönn Ingólfsdóttir lgfs og Fasteignaland kynnir í einkasölu: Einstaklega bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð (gengið upp hálfa hæð) í litlu fjölbýli við Jöklafold í Grafarvogi. Eignin er skráð alls 89,5 fm að stærð.
Eignin skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, eldhús og stofa. Tvö góð svefnherbergi ásamt rúmgóðu baðherbergi sem nýlega hefur verið tekið í gegn og sér geymslu í sameign. Fordæmi eru fyrir dýrahaldi í húsinu. Þetta er frábærlega vel staðsett eign þar sem afar stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs í síma: 692-3344 og hronn@fasteignaland.is Nánari lýsing eignar:Forstofa: Afar rúmgóð forstofa með góðum skápum.
Eldhús: Góð innrétting með góðu vinnuplássi og borðkrók við glugga.
Stofa + borðstofa: Stofan er rúmgóð með útgengi út á vestur svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjóna herbergi með góðum skápum.
Barnaherbergi: rúmgott barnaherbergi með skáp.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtu. Góð innrétting og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Var tekið í gegn 2023.
Parketið á íbúðinni var allt pússað upp af fagmönnum árið 2021 og lakkað.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í verslun, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.