GLÆSILEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ SUÐVESTUR ÚTSÝNIS SVÖLUM Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ Í NORÐLINGAHOLTI.Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands (HMS) er birt flatarmál eignarinnar 87,1 fm.Um er að ræða 3ja herb. íbúð á 2. hæð í lyftuhúsnæði byggðu árið 2014 með suðvestur svölum.
Gengið er inn í rúmgóða forstofu og gang, beint inn af er alrými inn í stofuna sem skiptir íbúðinni upp, baðherbergið er til hægri við forstofuna. Opið eldhúsið er til vinstri, en þar við hliðina er stærra svefnherbergið. Stofan er rúmgóð í enda forstofugangsins. Minna svefnherbergið er hægra megin við stofuna. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð og sér geymsla íbúðarinnar er í kjallara hússins.
Forstofa/gangur: Fataskápur og parket á gólfi.
Stofa: Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi og opið í eldhúsið, útgengt á skjólgóðar suðvestur svalir.
Eldhús: Viðarinnrétting, gott skápapláss og borð-eyja út af. Uppþvottavél fylgir, parket á gólfi og opið í stofuna.
Svefnherbergin: Bæði rúmgóð með parketi á gólfum og góðum skápum.
Baðherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi (gert ráð fyrir þvottavélum), flísalagt, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi.
Geymsla: Skráð 8,1 fm. í kjallara, lausar hillur geta fylgt með sem eru nú til staðar.
Sameign: Glæsileg og vel um gengin sameign.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Góð bílastæði eru fyrir framan húsið.
- Einstakt útsýni til Bláfjalla og yfir Heiðmörkina.
Virkilega glæsileg eign í barnvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og Heiðmörk með öllum sínum útivistarmöguleikum rétt við hendina. Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is