Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Smáravegur 4 - 201, Dalvík
Um er að ræða rúmgóða fimm herbergja efri sér hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Eignin er skráð samtals 167,2 fm. að stærð, þar af er bílskúr 25,5 fm.
Eignin skiptist i forstofu, stigauppgöngu, stofu, eldhús, þvottahús, geymslu/búr, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er flísum á gólfi, þaðan er gengið upp steyptan og teppalagðan stiga upp á efri hæðina.
Stofa og borðstofa í opnu rými með parket á gólfi. Úr stofunni er gengið út á svalir til suðurs.
Eldhús með parket á gólfi, gott vinnupláss í eldhúsi og er þar borðkrókur, bakaraofn í vinnuhæð, uppþvottavél 45 cm. fylgir með. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús og þaðan inn í geymslu/búr. Einnig er hægt að ganga inn í þvottahús beint úr stigauppgöngunni.
Þvottahús með opnanlegum glugga, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla/búr með opnanlegum glugga og hillum er innaf þvottahúsinu.
Svefnherbergin eru fjögur, öll eru þau með parket á gólfi. Búið er að fjarlægja gamla fataskápa og vantar því parket á gólf þar sem skápar voru áður. Engir fastir skápar eru í hebrergjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggir að hluta, baðkar með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Ágætis innrétting við vask.
Bílskúrinn er norðan við hús, bílskúrinn fjær húsinu er sá sem tilheyrir efri hæðinni. Bílskúrinn er skráður 25,5 fm. að stærð. Eingöngu er hægt að nota inngönguhurðina í bílskúrnum þar sem stóra hurðin hefur verið lokuð og þétt.
Annað:
- Gluggar, gler, svalahurð og útidyrahurð endurnýjað 2020.
- Pappi á bílskúrsþaki var endurnýjaður 2022
- Húsið var múrviðgert að utan sumarið 2022 og málað að utan 2023
- Eigendur hússins hafa skipt mér sér lóðinni og tilheyrir suður og austurhluti lóðar efri hæðinni
- Skúr á lóð, þvottasnúra og rólur fylgja með
- Búið er að taka inn ljósleiðari
- Tvöfalt bílastæði er sunnan við húsið, einnig er bílastæði fyrir framan bílskúr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955