Myndir þessar eru af seldu systur húsi sem er við hliðina á því sem verið er að byrja á. Annað litaval verður á klæðningu. Húsið er til afhendingar eftir 5-6 mánuði.
Glæsilegt einnar hæðar 205 fm einbýli í smíðum á frábærum stað í Þorlákshöfn, leikskóli og öll helsta þjónusta í göngufæri. Eignin er til afhendingar strax og er uppítaka á ódýrari eign möguleg. Ásett verð miðast við núverandi ástand. Möguleiki er að fá húsið spartlað og grunnmálað, tilbúið til innréttinga á kr.105.000.000.- Mögukeiki er að fá húsið tilbúið að innan á kr. 129.900.000.- skv. nánari skilalýsingu seljanda. Seljandi getur líka aðstoðað við að fá ódýr en vönduð gólfefni og innréttingar á mjög hagstæðu verði,.
Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér
Í húsinu er m.a. gert ráð fyrir 4 rúmgóðum svefnherbergjum, innbyggðum 37 fm bílskúr tvö baðherbergi og fleira. Óskráð 20 fm geymsluloft. Húsið er, tilbúið að utan með viðhaldsfrírri fíber sements klæðningu og hitameðhöndlaðri timburklæðningu ( thermowood), lóð grófjöfnuð. Að innan verður húsið tilbúið til innréttinga. Gluggar með þreföldu gleri, ál/tré. Aukin einangrun er í öllu húsinu. Vönduð þakklæðning, RUUKI classic með snjóstoppara og rennum í stíl.
Lóð verður grófjöfnuð.
Möguleiki er að fá húsið tæplega tilbúið til innréttinga eða lengra komið í samráði við kaupendur og breytist verðið þá til hækkunar eða lækkunar. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is Gsm 895 3000.-Nánari lýsing : Hár orkuflokkur og þar af leiðandi mikill sparnaður í hitun. (B eða B low)
Góð einangrun:
250 mm í þaki
200 mm í veggjum
Sökklar einangraðir að innan og utan (50 + 100 mm)
Þrefalt gler í gluggum og hurðum
Mikið lagt upp úr gæðum, í hönnun, efnivið, orkusparnaði, framkvæmd og gæða frágangur. Opið flæði eldhús, borðstofa og stofa. Rými vel nýtt og gott flæði um hús. Gert ráð fyrir heitum pott.
Opið upp í loft, 2.6 metra lofthæð í herbergjum, 4 svefnherbergi og 2 af þeim stór, Góð hljóðvist, mikil einangrun og þykkir innveggir. Hágæða loftun, loftun fyrir veggi og þak samtengt
Viðbótar: Geymsluloft til viðbótar í bílageymslu - 9 m2. Geymsluloft til viðbótar inn í íbúð. – 11 m2. Möguleiki væri á að byggja sólskála með tilskyldum leyfum. .
Klæðning á útveggjum er viðhaldsfrí, Fiber sementplötur, Hitameðhöndlaður viður, Þakplötur á þaki með snjóstoppara, Viking ál/timbur gluggar/hurðir með þreföldu gleri.