Fasteignasalan TORG kynnir : Fallega og mikið endurnýja, 4ra herb. í lyftuhúsi með suðurverönd. Gengið er niður eina hæð frá bílastæði. Gott aðgengi er að húsin og sameign til fyrirmyndar.
Öll íbúðin hefur verið uppgerð á síðustu 2 árum, að undanskildu baðherbergi. Það hefur verið sett nýtt eldhús, nýtt parket á alla íbúðina, nýjar flísar á eldhúsgólfi, nýir listar og allar hurðir endurnýjaðar. Íbúðin hefur einnig nýlega verið máluð og gluggar lakkaðir.
Íbúðin er með 3 svefnherbergjum í dag, þó samkvæmt upphaflegri teikningu sé hún skráð með einu svefnherbergi. Eignin skiptist í dag í , forstofu, hol, baðherbergi ( með tengi fyrir þvottavél) eldhús, borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi og geymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu er í sameign. Sjá teikningu frá seljanda. Allar nánari veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / helgi@fstorg.is og Sigríður Rut, Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með góðum innbyggðum fataskápum.
Holið er rúmgott með parketi á gólfi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu og tækjum . ofn í vinnuhæð og uppþvottavél. Flísar á gólfi
Borðstofa er í framhaldi af eldhúsi og er opin inn í stofu,parket á gólfi
Stofan er björt með fog parketi á gólfi. Útgengt út á verönd sem snýr í suður.
Hjónaherbergi er með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi I er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi ll er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, snyrtilegri innréttingu, skápum og er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherberginu.
Sér geymsla er í íbúð.
Nóg af sameiginleg bílastæðum fyrir framan húsið, upphituð uppkeyrsla að húsinu ásamt bílaplani.
Íbúðin er björt og snýr til suðurs og vesturs. Stór sérpallur, snyrtileg lóð.
Virkilega góð eign og umhverfi allt til fyrirmyndar.
Íbúðin er vel staðsett á vinsælum stað þar sem stutt er í alla þjónustu, á öruggri gönguleið í Salalaug, skóla og leikskóla, verslun og þjónustu. Strætóstoppistöð við húsið.Allar nánari veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / helgi@fstorg.is og Sigríður Rut, Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.