Fasteignaleitin
Skráð 8. maí 2026

Torre Pacheco Spánn

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
88 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
38.990.000 kr.
Fermetraverð
443.068 kr./m2
Byggt 2027
Pallur
Á einni hæð
Fasteignanúmer
9460155_5
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir nýtt og glæsilegt verkefni í Torre Pacheco á Murcia-svæðinu á suðurhluta Spánar.
Um er að ræða fallegt og rólegt íbúðasvæði sem hentar einstaklega vel þeim sem leita að nútímalegu heimili í afslöppuðu umhverfi með góðu næði og þægindum allt árið um kring.
Fyrsti áfangi verkefnisins samanstendur af sex einbýlishúsum á einni hæð þar sem áhersla er lögð á þægilegt skipulag, birtu og hinn klassíska Miðjarðarhafslífsstíl.
Húsin eru hönnuð með nútímalegu yfirbragði þar sem samræmi er á milli inni- og útisvæða og allar lausnir miðast við einfalt og þægilegt líf.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 // elka@fstorg.is

Hver villa er um 88 fm að stærð og skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö fullbúin baðherbergi og bjarta stofu og borðstofu í opnu rými með glæsilegu eldhúsi. Eldhúsin eru afhent innréttuð og búin helstu tækjum.
Útisvæðin eru sérlega aðlaðandi með einkasundlaug, rúmgóðum veröndum, einkabílastæði innan lóðar og stórri þakverönd (solarium) með sumareldhúsi þar sem njóta má sólar og útiveru allt árið um kring.

Eignirnar verða afhentar með:
Einkasundlaug
Þakverönd með eldhúsi
Einkabílastæði á lóð
Forlögn fyrir loftræstikerfi (ducted AC)
Aerothermal hitakerfi fyrir heitt vatn
Tvöföldu gleri og PVC gluggum með hitaeinangrun
Innbyggðum fataskápum
Postulínsflísum á gólfum

Verkefnið er staðsett á góðum stað í Murcia-héraði með stuttri akstursfjarlægð í golfvelli, þjónustu, verslanir, veitingastaði og strendur Mar Menor. Svæðið hentar bæði sem orlofseign og til heilsárs búsetu.
Afhending er áætluð í júlí 2027.
Verð frá €259.900.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.

Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum.
Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra umsýslugjalda.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 // elka@fstorg.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Kirkjuvegur 17
625 Ólafsfjörður
76.8 m2
Einbýlishús
312
389 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Vallargata 4
Skoða eignina Vallargata 4
Vallargata 4
230 Reykjanesbær
109.8 m2
Einbýlishús
413
592 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Faxabraut 17
Skoða eignina Faxabraut 17
Faxabraut 17
230 Reykjanesbær
90.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
600 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Skoða eignina Leirdalur 37
Efsta hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirdalur 37
Leirdalur 37
260 Reykjanesbær
97.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
716 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin