Aldir fasteignir og Brynjólfur Snorrason lgfs., kynna til sölu frábært fjárfestingartækifæri í miðborg Reykjavíkur. Eignin er skráð sem verslunarrými og er samtals 172,7 m2 að stærð, þar af rými á fyrstu hæð 101,4 m2, sem hefur verið innréttað sem fjórar studioíbúðir og býður upp á mikla tekumöguleika. Þá tilheyra eign tvær geymslur í kjallara og 60 m2 rými með þakgluggum og ca 2,7m lofthæð, sem áður var nýtt sem lager, og býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika. Íbúðirnar voru allar innréttaðar á árunum 2016-2018 og árið 2021 var húsið sjálft múr-, steypuviðgert og málað og þak var yfirfarið. Fjárfestingartækifæri í miðborg Reykjavíkur þar sem sjón er sögu ríkari.
***Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is***
Nánari lýsing.Íbúð eitt: Gengið inn frá Barónsstíg og komið inn í alrými þar sem er svefnaðstaða, ágæt eldhúsinnrétting, Terrasso gólf og stórir gluggar. Baðherbergi er með vegghengdu WC, handlaug, innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni og flísalögðum sturtuklefa. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Íbúð tvö: Gengið inn frá horni Barónsstígs og Grettisgötu og komið inn í alrými þar sem er svefnaðstaða, eldhúsinnrétting, Terrasso gólf og stórir gluggar. Baðherbergi er með vegghengdu WC, handlaug, innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni og flísalögðum sturtuklefa. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Íbúð þrjú: Gengið inn frá Grettisgötu og inn í sameiginlegan stigagang og þaðan inn í gang/hol. Þaðan er gengt inn í alrými þar sem eru tveir gluggar, eldhúsinnrétting og tæki. Á gólfi er harðparket. Baðherbergi er með vegghengdu WC, handklæðaofni, flísalögðum sturtuklefa og innbyggðum blöndunartækjum. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Íbúð fjögur: Gengið inn frá Grettisgötu og komið inn í sameiginlegan stigagang og þaðan inn í gang/hol. Frá gangi/holi er komið inn í alrými þar sem er eldhúsinnrétting og tæki. Á gólfi er harðparket. Frá rými er útgengt á verönd/port á bak við hús. Baðherbergi er með vegghengdu wc, handklæðaofni, flísalögðum sturtuklefa og innbyggðum blöndunartækjum. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottaherbergi, tvær sér geymslur og 61,2 fermetra óinnréttað rými (möguleiki að útbúa fimmtu útleigueininguna) þar sem er um 2,7 metra lofthæð, þakgluggar og neysluvatns- og ofnalagnir innan rýmis.
Húsnæðið var mikið endurnýjað á árunum 2016 - 2018, þar á meðal baðherbergi, eldhúsinnréttingar, tæki, raflagnir, rafmagnstöflur, ofnar, ofnalagnir að stórum hluta og neysluvatnslagnir að hluta, útihurðar, gluggar og gler. Þá var húsið múr-, steypuviðgert og málað árið 2021 og þak yfirfarið. Allt innbú, sem er til staðar í eigninni getur fylgt með í kaupunum.
Eign sem býður upp á margskonar tækifæri og tekjumöguleika.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, brynjolfur@aldirfasteignir.isAldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.