RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Langholt 21, Keflavík fnr. 208-9778Húsið var byggt árið 1965 og er steypt hús. Húsið er skráð hjá Þjóðskrá 168 fm og þar af er bílskúr 32 fm. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu og stór lóð sem er 672 fm og er búið að endurnýja lóðina að miklu leiti síðustu ár en á eftir að klára.
Hægt er að ferðast um eignina í
þrívíddarhlekknum. Sjón er sögu ríkari. Skipulag allrar eignarinnar má sjá á
gólfteikningum sem eru staðsettar hjá ljósmyndum af eigninni.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3D- SÖLUYFIRLIT Í TÖLVUPÓSTI -Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulagt bílaplan fyrir framan hús og í innkeyrslu að bílskúr. Steypt stétt að inngangi í húsið.
Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Gestasalerni: Flísar á gólfi. Skápur með handlaug. Upphengt salerni.
Stofa/Borðstofa: Parket á gólfi. Síðir gluggar í stofu sem gefa góða birtu í rýmið.
Eldhús: Flísar á gólfi með gólfhita. Rumgóð innrétting með flísalögn á milli efri og neðri skápa. Samsung bakstursofn. Helluborð með háfi yfir.
Þvottahús: Gegnið er inn í þvottahúsið úr eldhúsi og þar er innrétting. Útgengt úr þvottahúsi í baklóð hússins.
Svefnherbergi: Eru fjögur og er parket á gólfum þeirra allra sem og fataskápar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi með halla að niðurfalli og aðdraganlegum glerhurðum. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Gluggi er í rýminu.
Bílskúr: Innkeyrslu hurð og inngöngu hurð úr bakgarði. Birt stærð skúrsins er 32 fm. Nýlegt þakjárn er á skúrnum.
Lóðin: Skráð stærð lóðar er 672 fm Búið er að endurnýja lóðina að mestu leiti að framanverðu en vinna við baklóðina er hafin en er ekki lokið.
Langholt 21 er vel staðsett hús í Keflavík. Stór lóð sem búið er að endurnýja að töluverðu leiti. Núverandi eigendur keyptu húsið í árslok 2020. Þegar þau keyptu húsið þá var í söluyfirliti að búið væri að endurnýja skólplögn. Miðstöðvarlögn er utanáliggjandi og í eir. Búið að endurnýja glugga í stofu, borðstofu og eldhúsi sem snúa í suður. Þakjárn endurnýjað á bílskúr.
Framkvæmdir frá 2021 - - Rafmagntafla endurnýjuð og 3 fasa rafmagn bætt við og dregið rafmagn í bílarafstöð
- Lóð austan- og suðvestan megin endurhönnuð og jarðvegur og grasflötur fjarlægt. Gömul víðitré rifin upp og mispill settur í staðinn. Gróðursettar plöntur og trjágróður.
- Skipt um um skáp í forstofu.
Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf. í síma
861-7507 eða
daddi@remax.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.