Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Suðurbraut 15, Hofsósi ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Um er að ræða steypta fasteign á tveimur hæðum ásamt bílskúr og er skráð stærð fasteignarinnar hjá HMS alls 280,6 fm.
Á efri hæð er 129,4 fm íbúð og á neðri hæð er 129,4 fm læknastofa. Bílskúr er 21,8 fm. Áður var starfrækt heilsugæsla á neðri hæð hússins.
Húsið var byggt árið 1951. Leigulóð er 2295,7 fm.
Fasteignin er vel staðsett og frábæru útsýni.
Efri hæðin skiptist í fjögur herbergi, rúmgóða stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, gang, forstofu og stigapall. Á neðri hæð var áður starfrækt heilsugæsla og skv. teikningu skiptist hæðin í biðstofu, forstofu, skrifstofu, snyrtingu, móttöku, skoðunarherbergi og hol. Inn af læknastofunni eru þrjár geymslur, gangur, inntaksrými og þvottahús.
Fasteignin býður upp á mikla möguleika.
Efri hæð: Komið er inn í forstofu og þaðan á parketlagðan stigapall þar sem parketlagður stigi er upp í íbúðina (einnig hægt að fara niður á læknastofuna).
Gangur íbúðarinnar er parketlagður.
Tvö lítil parketlögð herbergi, með gluggum til norðurs.
Herbergi, parketlagt með gluggum til norðurs og vesturs.
Svefnherbergi, parketlagt og með fataskápum. Útgengt út á litlar timbursvalir til suðurs.
Stofa/borðstofa er rúmgóð, með góðu útsýni til vesturs. Tvær hurðar eru frá gangi inn í stofuna.
Baðherbergi er flísalagt, með hvítum vaskaskáp og baðkari.
Eldhús er með dökku parketi, eldri innréttingu með ljósri borðplötu. Helluborð og bakaraofn.
Neðri hæð: Komið er inn í dúkalagða forstofu.
Hol er dúklagt, þar er vaskur og lítil snyrting. Frá holi liggur stigi upp á efri hæðina.
Biðstofa er dúklögð, þar er lítil snyrting með fjólubláum flísum.
Frá biðstofu er komið inn í dúklagt herbergi með vaski og skápum. Þrjár hurðar eru frá þessu rými, inn á biðstofu, fram á gang og yfir í annað herbergi sem jafnframt er dúklagt og með skápum.
Frá þessum rýmum er komið inn á gang þar sem eru geymslur og þvottahús.
Þvottahús er með innrétttingu og vaski. Útgengt er til suðurs út í garð.
Sérinngangur er fyrir íbúðina og sérinngangur er fyrir læknastofuna. Þeir eru báðir staðsettir á norðuhlið hússins. Jafnframt er innangengt milli hæða.
Bílskúr er norðan við húsið, með útgengi í garð til suðurs.
Ástand hússins að innanverðu er þokkalegt en kominn er tími á endurbætur þar sem innréttingar og tæki eru að mestu leyti gamalt. Miðstöðvarlagnir og ofnar voru endurnýjaðir þegar hitaveitan kom á Hofsós en upplýsingar um aðrar lagnir liggja ekki fyrir og verður því að gera ráð fyrir að þær séu gamlar og óvíst með endingartíma.
Að utan má segja að ástand hússins sé almennt gott, m.a. hefur fasteignin verið einangruð og klædd að utan, gluggar á neðri hæð hafa verið endurnýjaðir ásamt einum glugga á efri hæð og bílskúr, svalahurð á efri hæð var endurnýjuð, þakpappi lagður á bílskúr, sökkull einangraður og svalir endurgerðar. Bílaplan er malarborið og hellulagt við hús.
Hofsós er lítið kauptún við austanverðan Skagafjörð með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, bensínstöð, verkstæði, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Útsýni er yfir eyjar Skagafjaðar er einstaklega fallegt og stutt er í fallega náttúru og útivist.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala