Fasteignaleitin
Skráð 10. feb. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Mar De Pulpi

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Annað
78 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
24.300.000 kr.
Fermetraverð
311.538 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
950090120
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir
Upphitun
Kæling/hiti

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ STRÖND* *FRÁBÆR AÐSTAÐA TIL ÚTIVERU OG ÍÞRÓTTAIÐKUNAR.

Glænýjar og vandaðar 3ja herb. íbúðir við strönd í Mar De Pulpi,  spennandi nýjum stað í Almeriu héraðinu, ca. 2 klst. akstur frá Alicante flugvelli. Öll þjónusta á svæðinu, verslanir og veitingastaðir. Frábær aðstaða til útiveru og íþróttaiðkunar. Góðir golfvellir á svæðinu.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafærðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lítil fjölbýlishús með  vel hönnuðum íbúðum. Hægt er að velja íbúðir með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæð, með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og  stórum einka þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, göngustígum og góðri leikaðstöðu fyrir börn. Örstutt á strönd, verslanir og veitingastaði. 
Bílastæði fylgja.

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar fallegum húsgögnum gegn aukagjaldi.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri. Þar eru fallegar gönguleiðir, hjóla- og hlaupastígar. Á svæðinu er lagt mikið upp úr góðri aðstöðu til útiveru og íþróttaiðkunar. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying, spænskukennsla ofl.
Tveir góðir golfvellir eru á svæðinu, Aguilón í ca. 10 mín akstursfjarlægð, og Desert Springs í ca. 30 mín akstursfjarlægð. Skemmtilegir strandbæir í næsta nágrenni.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað og á góðu verði.

Verð miðað við gengi 1 Evra=150 ISk.
2ja herbergja íbúð (eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi): frá 133.000 Evrum (ISK 19.900.000) + kostn.
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi): frá 162.000 Evrum (ISK 24.300.000) + kostn.
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 183.000 Evrum (ISK 27.400.000) + kostn.
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 225.000 Evrum (ISK 33.700.000) + kostn.
Eignirnar eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning eða á næstu mánuðum.

Eignirnar eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning eða á næstu mánuðum.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK. 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK.120.000.Gisting í íbúðum á svæðinu og akstur til og frá flugvelli og hálft fæði.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

MAR DE PULPI:
Spennandi nýr staður fyrir fólk sem stundar útivist, íþróttir, sólböð og golf. Örstutt göngufæri á fallega og ósnortna strönd, Los Nardos Beach, þar sem hægt er að njóta hlýrra sólargeisla og ganga um græna og fallega garða. Góð leikaðstaða fyrir börn, notalegir veitingastaðir og ölduniður. 
Verslunar og veitingahúsakjarni er með úrvali veitingastaða og verslana, og einnig er örstutt í næstu litlu strandbæi þar sem er enn meira úrval af góðum veitingastöðum og skemmtilegum verslunum. Góðir golfvellir og fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkunar. Göngu og hjólastígar og margt fleira sem gerir dvölina ánægjulega. Í boði eru ýmsar skipulagðar ferðir um næsta nágrenni og svo auðvitað spænskukennsla. Sem sagt eitthvað spennandi fyrir alla.


Eiginleikar: strönd, air con, ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, þakverönd,
Svæði: Almeria, Mar de Pulpi,



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
950090120

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvanneyrarbraut 60
Hvanneyrarbraut 60
580 Siglufjörður
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
296 þ.kr./m2
23.500.000 kr.
Skoða eignina Hvanneyrarbraut 60
Hvanneyrarbraut 60
580 Siglufjörður
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
309 þ.kr./m2
24.500.000 kr.
Skoða eignina Hvanneyrarbraut 58
Hvanneyrarbraut 58
580 Siglufjörður
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
314 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Lokastígur 1 íbúð 204
Lokastígur 1 íbúð 204
620 Dalvík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
393 þ.kr./m2
24.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache