Fasteignaleitin
Skráð 7. mars 2024
Deila eign
Deila

Túngata 22

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
147.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
237.254 kr./m2
Fasteignamat
45.750.000 kr.
Brunabótamat
59.000.000 kr.
Byggt 1910
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2090991
Landnúmer
128273
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfallt
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Allir gluggar og allar hurðir eru ílla farið/ónýtt og þarfnast ítarlegri skoðunar við.
-Utanhúss klæðning er ílla farin/ónýt og þarfnast ítarlegri skoðunar.
-Þakið og þakkantur er ílla farið/ónýtt og þarfnast ítarlegri skoðunar.
-Merki um rakaskemmdir í íbúðinni, þarfnast ítarlegri skoðun.
-Burðarvirkið í heild sinni þarfnast ítarlegri skoðunar og ráðlagt er að leita til sérfróðra aðila.
-Merki um myglu í íbúðinni, þarfnast ítarlegri skoðunar.
-Baðherbergið í heild sinni þarfnast viðgerðar, merki um rakaskemmdir og þarfnast ítarlegri skoðunar.
-Enginn hiti er á eigninni.

Húsið og íbúðin í heild sinni er í slæmu ástandi og þarfnast ítarlegri skoðunar af kaupanda, ráðlagt er að leita til sérfróðra aðila.

Endurnýja þarf lóðarleigusamning.
Fyrirhugaðar framkvæmdir; Engar.

Lóðarréttindi/kvaðir: Leigulóð/lóðarleiga á ári. Skv. eignaskiptayfirlýsingu: Kvöð um að eign 0101, eða fulltrúi þeirrar eignar hafi aðgang að heitavatnsgrind í þvottahúsi eignar 0102 til nauðsynllegs viðhalds. Kvöð um að eigendur Túngötu 20, hafi aðgang að lóð Túngötu 22 fyrir framan eign 0101 til nauðsynlegs viðhalds á eign sinni. 
Kvöð / kvaðir
Í fasteignaskrá er húsið við túngötu 22, Keflavík, talið byggt árið 1910, enda þótt fátt í ytra útliti bendi til svo hás aldurs. Þegar ekki er öðrum skjalalegum heimildum um aldur húss til að dreifa þá tekur Minjastofnun mið af skráðu byggingarári í fasteignaskrá. Samkvæmt því nýtur húsið við Túngötu 22, friðunnar vegna aldurs skv. 1.mgr.29.gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Samkvæmt 3. mgr. 29. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 er Minjastofnun heimilt að aflétta friðun húsa er málefnalegar ástæður eru fyrir því að ekki sé unnt að varðveita hús á staðnum, t.d. vegna tæknilegs ástands, lágs varðveislumats eða annarra sérstakra aðstæðna.
Ásberg fasteignasala sími 421-1420, kynnir íbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Túngötu 22, í Reykjanesbæ.

Um er að ræða 147,1 m² íbúð í tvíbýli við Túngötu í Reykjanesbæ. Samkvæmt FMR skiptist eignin í íbúð 92,1 m², bílgeymslu 37,8 m² og geymslu 17,2 m². 

Lýsing eignar:  Íbúðin er anddyri, gangur með fataskáp og herbergi. 
Við enda gangs eru þrjár tröppur niður í mjög stóra stofu sem er opin að eldhúsi. 
Eldhúsið er með stórri innréttingu. Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.  Þá er lítið herbergi og annað stærra herbergi.
Yfir svefnhluta íbúðarinnar er lágt milliloft.
Gólfefni eru flísar og parket. Eignin þarfnast verulegrar viðgerðar við utan sem innan.
Húsið er klætt að utan með stölluðu járni sem þarfnast viðgerðar.
Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu.

Seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekkir ekki ástand hennar umfram það sem kemur fram í opinberum gögnum.
Seljandi hvetur því væntanlega kaupendur til að skoða eignina vel með það í huga. Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur á henni fyrir sölu.

Uppdrættirnir sem eru samþykktir eru ekki í samræmi við innra skipulag hússins í dag.

Upplýsingar um eignina eru veittar á skrifstofu Ásberg Hafnargötu 27, Reykjanesbæ  í síma 421-1420, asberg@asberg.is, asberg.is

Jón Gunnarsson Lögg. fasteigna- og skipasali. S: 894-3837 
Þórunn Einarsdóttir hefur lokið námi til fasteigna- fyrirtækja-og skipasali. S:  898-3837
Jón Gunnar Jónsson hefur lokið námi til fasteigna og skipasali.  S: 849-3073

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að huga að við kaup. Stimpilgjald vegna þinglýsingar kaupsamnings er 0,4-1,6% af fasteignamati hins keypta auk kr. 2.700.- fyrir þinglýsingu kaupsamnings.
Kaupandi tekur lán hjá bankastofnun / íbúðalánasjóði. Lántökugjald eru annars breytilegt eftir lánastofnunum en ávallt greiðast kr. 2.700.- fyrir þinglýsingu á hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölunnar er kr. 59.900.- krónur m/ vsk sem greiðist við undirritun kaupsamnings.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skolp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/04/200814.290.000 kr.16.800.000 kr.147.1 m2114.208 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
GötuheitiPóstnr.m2Verð
230
147.1
34,9
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache