Fasteignaleitin
Skráð 6. nóv. 2026

SPÁNAREIGNIR - Los Dolses

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
220 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
67.800.000 kr.
Fermetraverð
308.182 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 2017
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
20424202_2
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *LIFÐU SPÆNSKA DRAUMINN Í NÝLEGU FALLEGU EINBÝLISHÚSI MEÐ 5 SVEFNHERBERGJUM OG FIMM BAÐHERBERGJUM* *255 FM SUÐURLÓÐ MEÐ UPPHITAÐRI SUNDLAUG OG BÍLASTÆÐI* *EFTIRSÓTT STAÐSETNING, Í GÖNGUFÆRI VIÐ STRÖND OG LA ZENIA BOULEVARD* *ÞAKVERÖND MEÐ SJÁVARÚTSÝNI*

Stórglæsilegt einbýlishús sem hefur fengið gott viðhald. Einungis einn eigandi frá upphafi. Lóðin snýr í suður, hún er afgirt, með bílastæði á lóð og sér sundlaug. Á þaki hússins er stór þakverönd, með sjávarútsýni. Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í alrými eignarinnar. Stofur eru bjartar og rúmgóðar með gólfsíðum gluggum og tengjast eldhúsi skemmtilega. Eldhús er rúmgott, með góðu skápaplássi og vinnuplássi. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með skápum og sér baðherbergjum. Á hæðinni er einnig gestasnyrting með glugga. Á neðri hæð er stórt alrými, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og geymsla/þvottahús. 
Air con til kælingar/hitunar, hiti í gólfum á baði. Eignin afhendist með húsgögnum og er laus strax. 
Húsið er staðsett í lokaðri götu, engin óviðkomandi umferð. Algjörlega frábær staðsetning!

Einstakt tækifæri til að eignast flotta eign á frábærum stað. Aðeins einn eigandi frá upphafi. Fullkomið fyrir stórar fjölskyldur sem vilja vera nálægt en samt hafa sitt rými. 

Nánari upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615112869


Stutt frá La Zenia Boulevard, vinsælu verslunarmiðstöðinni. Stutt á ströndina. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni. Göngufæri í fjölda veitingastaða og verslana.
Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælu verslunarmiðstöðina. Gróið og fallegt umhverfi.
Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram allri ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast frábært hús á eftirsóttum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð: 499.000 evrur

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: Einbýlishús, stór lóð, einkasundlaug, bílastæði, þakverönd, nýleg eign,
Svæði: Costa Blanca, Los Dolses, Villamartin, La Zenia,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
20424202_2

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata - endaraðhús 40
fridjon_vefur-(16).jpg
Úugata - endaraðhús 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Valsheiði 14
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Valsheiði 14
Valsheiði 14
810 Hveragerði
200,7 m2
Einbýlishús
836
847 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarból 63
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarból 63
Heiðarból 63
230 Reykjanesbær
218,5 m2
Einbýlishús
514
595 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 10
Friðjón_vefur (1).jpg
Skoða eignina Vitastígur 10
Vitastígur 10
415 Bolungarvík
228,9 m2
Einbýlishús
725
292 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin