Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu. Virkilega bjarta og fallega útsýnisíbúð á 3. hæð í vönduðu + 50 ára lyftu fjölbýli við Sóleyjarima 1, 112 Reykjavík. Íbúðin ásamt geymslu er 101 fm og þar við bætist bílastæði í snyrtilegri bílageymslu. Húsið er byggt árið 2005 og hefur alla tíð verið í góðu viðhaldi og húsfélag er sterkt. Sérinngangur í íbúð af svölum. Virkilega fallegt útsýni og svalir með svalalokun. Íbúðin er á gafli hússins og því virkilega björt og falleg. Íbúðin er laus til afhendingar strax.
Nánari lýsing:
Eignin telur forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp, gangur með parketi á gólfi, tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting með lýsingu, upphengt wc og baðkar með sturtu aðstöðu. Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og eyju. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á 6,8 fm svalir sem eru með svalalokun. Nýlega innréttað þvottahús innan íbúðar með góðum skáp og innréttingu.
Húsið er byggt 2005, steinað að utan og er því viðhaldslétt. Lóð er snyrtileg.
Sérgeymsla í kjallara er 6,7 fm og fylgir íbúðinni. Í kjallara er snyrtileg sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sér bílastæði í bílakjallara er þurrt og snyrtilegt.
Falleg íbúð, vel umgengin á góðum stað með frábæru útsýni. Stutt er í alla þjónustu en Spöngin er hinum megin við götuna og þar er góður verslunarkjarni, Heilsugæsla Grafarvogs og Borgarbókasafn Menningarhús. Í verslunarkjarnanum er Hagkaup, Bónus, Lyfja, Vínbúðin, Dominos, Hamborgarabúllan, Huppa, Bakarameistarinn, Serrano og Kurdo Kebab auk blómabúðarinnar Í húsi blóma.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð