ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu bjart og vel skipulagða íbúð í endaraðhúsi í Sandgerði.
Þessi fallega 78,6 m² íbúð er á frábærum stað í rólegri botnlangagötu í Sandgerði, með opið svæði vestan megin og skóla nærri við. Íbúðin er vel skipulagt og nýtir vel hvern fermetra.Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.** Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar og gefa húsinu sérstakt og vandað yfirbragð.
** Að utan er húsið fullbúið, plan er malbikað, stétt hellulögð og gras á suður- og vesturhlið.
** Að baki er góð lóð sem snýr að móa og grænu belti. Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og sérsmíðuðum fataskáp, þaðan er gengið inní þvottahús. Úr anddyrinu opnast hol með harðparketi, sem leiðir inn í bjarta stofu þar sem borðstofa og eldhús eru í einu rými. Í eldhúsinu er dökk og rúmgóð sérsmíðuð innrétting með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Útgengt út á sólríka verönd sem snýr í suðvestur.
Bæði svefnherbergin eru rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Í hjónaherberginu er stór sérsmíðaður fataskápur. Baðherbergið er með flísalagt gólf og vegg að hluta, sérsmíðaðar innréttingar, upphengt salerni og baðkari með sturtu.
Þvottahúsið er með lökkuðu gólfi og góða innréttingu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.