Fasteignaleitin
Opið hús:23. júlí kl 16:00-16:30
Skráð 20. júlí 2026

Kirkjulundur 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
126.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
947.077 kr./m2
Brunabótamat
84.720.000 kr.
Byggt 2014
Jarðhæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23256792
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s: 896-6160 / erla@landmark.is kynna:
3 herbergja 126.6 m2 íbúð á 1. hæð við í Kirkjulund 14

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 117,9 m2 merkt 01-03 og geymsla er 8,7m2, samtals 126.6 m2 að stærð. 

Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2014. Eignin er afar vel staðsett þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri, svo sem verslanir, veitingastaðir, heilsugæsla og útivistarsvæði. Frá íbúðinni er skemmtilegt útsýni, meðal annars til sjávar og yfir Bessastaði.

Íbúðin skiptist í:
Forstofa: parketlögð
Tvö svefnherbergi: rúmgóð parketlögð herbergi með skápum
Stofa og borðstofa: samliggjandi parketlagðar í björtu rými
Eldhús: parketlagt með fallegri og rúmgóðri innréttingu, granít borðplötu og innfelldum vaski
Sjónvarpshol: parketlag
Baðherbergi: flísalagt með "walk in" sturtu og ræstigeymslu, mögulegt að bæta við baðkari
Gestasalerni: flísalagt
Þvottaherbergi: flísalagt
Svalir: Yfirbyggðar
Bílastæði: sérmerkt með raflheðslustöð, jafnframt er sameiginleg þvottaaðstaða fyrir bíla í bílakjallara
Geymsla: sér geymsla í bílakjallara

Frá stofu er útgengt á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem snúa í átt að Garðatorgi og nýtast vel stóran hluta ársins.
Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi, sjónvarpsholi og svefnherbergjum en flísar á baðherbergi, gestasalerni og í þvottaherbergi. Innréttingar eru vandaðar og eignin öll einstaklega snyrtileg og vel um gengin. Íbúðinni fylgir sér geymsla og sérmerkt bílastæði í bílakjallara með rafhleðslustöð. Í sameign er góð aðstaða, meðal annars hjólageymsla og sameiginleg þvottaaðstaða fyrir bíla. Sameign hússins er einstaklega snyrtileg og vel við haldið sem ber vott um góða umsjón.

Hér er um að ræða glæsilega eign á einum eftirsóttasta stað Garðabæjar þar sem þægindi, þjónusta og góðar samgöngur fara saman á einstaklega aðlaðandi hátt. Íbúðin er laus til afhendingar skv. samkomulagi.

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 7 (303)
Bílastæði
Hraungata 7 (303)
210 Garðabær
116.6 m2
Fjölbýlishús
312
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Hraungata 7 (202
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 11
Bílastæði
Skoða eignina Strandvegur 11
Strandvegur 11
210 Garðabær
118.1 m2
Fjölbýlishús
514
931 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8 (410)
IMG_6740.JPG
Krummahólar 8 (410)
111 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
567 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin