Fasteignaleitin
Opið hús:22. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 20. okt. 2026

Suðurhvammur 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
209.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
548.711 kr./m2
Brunabótamat
100.050.000 kr.
Byggt 1988
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20798951
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Valhöll kynnir bjarta og mikið endurnýjaða, 6 herbergja íbúð á 3. og 4. hæð (efstu hæð) í vel staðsettu fjölbýli í Hvömmunum í Hafnafirði með rúmgóðum bílskúr og frábæru útsýni. Eignin getur verið laus fljótlega.  Húsið hefur fengið gott viðhald, m.a. múrviðgert og málað og skipt hefur verið um flest gler, töluvert af gluggum, báðar svalahurðir og svalagólf á neðri hæð epoxy meðhöndlað.
Eigin er skráð 173,4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, íbúð á tveimur hæðum auk bílskúrs sem er 36 fm. eða alls 209,4 fm.
Nánari lýsing; Komið er inn í afar snyrtilega og bjarta sameign. Húsið er skemmtilega hannað þannig að hæðirnar skarast og tryggir þannig engar tvær íbúðir liggi saman.
Lýsing íbúðar; Neðri hæðin er nánast algjörlega endurnýjuð með gólfefnum, innréttingum, skápum, og hurðum.
Þar er rúmgott hjónaherbergi með nýlegum og veglegum fataskápum.
Stórar stofur með gluggum í suður og svölum. Inn af stofunni er nú innréttuð setustofa með innfelldum hilluskáp, þarna er gert ráð fyrir fimmta herberginu sem auðvelt er að útbúa með léttum vegg.
Eldhúsið er glæsilegt, nýleg innrétting þar sem pláss er fyrir tvöföldan ísskáp, innbyggður ofn og góðar hirslur og bekkpláss, eyja með span helluborði með innbyggðum háf skiptir rýminu aðeins upp en góður borðkrókur rúmar vel borð fyrir 6 manns. Frá eldhúsinu er frábært útsýni yfir Hafnarfjörðinn og víðar.
Baðherbergi er rúmgott, nýlega endurnýjað með stóru (tvöföldu) baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni, tveimur vöskum og innréttingu með góðu hirsluplássi. Þar er opnanlegur gluggi. Þvottahús næst eldhúsinu er með innréttingu, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, hillum og vask.
Veglegur stigi liggur milli hæðanna. Efri hæðin er fjölskylduvæn, þar er rúmgott sjónvarpshol fyrir miðju rýminu. Herbergin eru 3, öll aðeins undir súð sem gerir þau stærri að gólffleti og bætir nýtanlegt pláss. Aukin lofthæð er yfir hluta efri hæðarinnar.
1. Herbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
2. Herbergi er einnig rúmgott en það var hugsað sem hjónaherbergi, góðir skápar, þaðan er gengið út á stórar suð-austur svalir sem eru hellulagðar. Þetta herbergi er í dag notað sem líkamsræktaraðstaða og vinnuaðstaða.
3. Herbergi er nú notað sem heima skrifstofa, útsýni til norð-vesturs yfir Hafnarfjörðinn.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og nýlegum sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Gólfefni; Harðparket er á gólfum neðri hæðar fyrir utan þvottahús og baðherbergi sem eru flísalögð. Einnig er parket á efri hæðinni, baðherbergi er flísalagt.
Sameign er afar snyrtileg, nýlega máluð, dökkgrátt teppi er á gólfum. Í sameign á jarðhæðinni er sérgeymsla íbúðarinnar, 8,5 fm. auk þess sem þar er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Eigninni fylgir vel búinn bílskúr, 36 fm., þar er heitt og kalt vatn og rafmagn, vaskur, ofn, vinnuaðstaða innst í bílskúrnum og geymsluloft yfir hluta hans.
Góð aðkoma er að húsinu, bílastæði beint fyrir framan bílskúrinn þar sem auðvelt er að koma fyrir rafhleðslustöð,  þá er töluvert af sameiginlegum stæðum við og nálægt húsinu og þar er hleðslustöð fyrir tvo bíla sem húsfélagið lét setja upp.
Þetta er einstaklega vel staðsett eign þar sem stutt er í allt menntastig frá leikskóla upp í menntaskóla, íþróttasvæði Hauka og sundlaugar, þá er miðbærinn í göngufjarlægð. Einnig er stutt í náttúru t.d. Ástjórn og Ásfjall.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir s. 777-2882 eða thora@valholl.is
Nánar um viðhald hússins;
2019 var framhlið og gaflar múrviðgerðar og málaðar og gluggar yfirfarnir.
2022 var bakhlið hússins múrviðgerðar og máluð, skipt um glugga og svalahurðir og klæðning og einangrun á efstu hæðinni endurnýjuð ásamt því að epoxy var sett á gólffleti svala.
Nýlega var settur myndavéla-dyrasími í sameign/íbúðir og hurðir inn íbúðirnar endurnýjaðar með brunavarnalagi.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 22 - 201
Bílastæði
Opið hús:21. okt. kl 17:30-18:00
Áshamar 22 - 201
221 Hafnarfjörður
217,8 m2
Fjölbýlishús
413
370 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 - 205
Opið hús:21. okt. kl 17:30-18:00
Áshamar 24 - 205
221 Hafnarfjörður
216,6 m2
Fjölbýlishús
423
372 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 22 - 202
Bílastæði
Opið hús:21. okt. kl 17:30-18:00
Áshamar 22 - 202
221 Hafnarfjörður
82,2 m2
Fjölbýlishús
32
839 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 - 501
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:21. okt. kl 17:30-18:00
Áshamar 26 - 501
221 Hafnarfjörður
137,4 m2
Fjölbýlishús
423
945 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin