Valhöll kynnir fallega þriggja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu hæð) í góðu fjölbýlishúsi í Skálagerði 9, 108 Reykjavík. Góð staðsetning og stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Eignin skiptist í forsofu, eldhús, stofu, tvo herbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Í kjallara er svo einnig sameiginlegt þvottahús og vagna- hjólageymsla.
Samkvæmt þinglýstri eingnaskiptayfirlýsingu er íbúðin skráð 62 fm á stærð og geymslan 4,5 fm, samtals 66,5 fm.
Þetta er falleg íbúð sem vert er að skoða. Mjög góð fyrsta eign.
Athugið að eignin verður ekki sýnd fyrr en á opnu húsi mánudaginn 18. mai milli kl 17.00 og 17.30. Verið velkomin.
Nánari lýsing eignar.
Forstofa: með fataskáp og er parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: með parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Baðherbergi: með sturtuklefa, upphengdu salerni, vaskinnréttingu, veggskáp, handklæðaofni og flísum á gólfi. :
Eldhúsið: með ljósri innréttingu, borðkrók, glugga og dúk á gólfi.
Herbergi I: með rúmgóðum og nýlegum fataskáp og dúk á gólfi.
Herbergi II: lítið herbergi með dúk á gólfi. Í dag er stór fataskápur í herberginu og má hann fylgja með óski kaupendur eftir þvi.
Geymsla: í kjallara með hillum og rafmagnstengli.
Þvottahús: sameiginlegt í kjallara með tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir hverja íbúð.
Vagna- og hjólageymsla og þurrkherbergi: sameiginlegt í kjallara.
Framkvæmdir á húsi síðustu ár samkvæmt seljanda:
* Ruslaskýli endurnýjað 2025
* Settur upp nýr dyrasími með myndvél 2024.
* Húsið múrviðgert og málað að utan 2022
* Skipt um alla glugga og gler í eldhúsi og svefnherbergjum og skipt um gler og gluggalista í íbúð árið 2020. Einnig var skipt og glugga og gler í öðrum íbúðum eftir þörfum.
* Þak yfirfarið 2018
Framkvæmdir á húsi samkvæmt gjaldkera húsfélagsins í Skálagerði 9.
* Drenað í kringum hús og frárennslislagnir endurnýjaðar í kringum árið 2013.
Nánari upplýsingar veita:
Gylfi Þór fasteignasali í síma 7704040 eða í tölvupósti á netfangið gylfi@valholl.is
Snorri Björn fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.