Við sjávarsíðuna – glæsilegt parhús með einstöku útsýni Á einum eftirsóttasta stað Kópavogs, þar sem hafið og náttúran mynda einstaka umgjörð, stendur þetta glæsilega 232,2 fm parhús við Huldubraut 34, þar af 24,9 fm innbyggður bílskúr, hannað af Jakobi E. Líndal arkitekt FAÍ. Frá helstu vistarverum hússins nýtur stórbrotið útsýni yfir Nauthólsvík, Öskjuhlíð, Perluna og Háskólann í Reykjavík. Stórir gluggar draga náttúruna inn í rýmin og skapa einstaka birtu og tengingu við umhverfið. Hér sameinast vönduð hönnun, fallegt skipulag og eftirsótt staðsetning í eign sem hentar einstaklega vel fjölskyldum. Einnig eru næg bílastæði, stutt i göngu og hjólastíga sem liggja til náttuperla höfuðborgarsvæðisins. Bókið skoðun hjá Ísak V. Jóhannssyni hjá Lind fasteignasölu í síma 8225588 / isak@fastlind.is Lýsing eignar: Forstofa : Komið er inn í bjarta og opna forstofu á millipalli. Fallegur stigi, sem tengir hæðir hússins saman, er upplýstur með stórum þakglugga sem fyllir miðrýmið af náttúrulegri birtu. Frá forstofu er útgengt í fallega hannaðan suðurgarð. Neðri hæð : Á hæðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, rúmgott aðalbaðherbergi og innangengt í bílskúr. Á sér palli eru þvottaherbergi og geymsla sem gera skipulag hússins einstaklega hentugt. Aðalhæð : Hér er hjarta heimilisins. Bjart og opið alrými með stofu, sjónvarpsstofu, borðstofu og eldhúsi þar sem útsýnið fær að njóta sín til fulls. Frá sjónvarpsstofu er útgengt á norðursvalir með fallegu útsýni yfir sjóinn og Nauthólsvíkina, en frá borðstofu er útgengt á sólríkar suðursvalir. Á hæðinni er einnig gestasalerni með sturtu. Ris : Risið setur sterkan svip á eignina með fallegum hallandi loftum og opnu rými yfir stofu, pallurinn er hentugt hobby/afþreyngarrými með svefnherbi innaf sem er rúmgott og gluggar sem ramma inn hið einstaka útsýni yfir sjóinn og Öskjuhlíðina. Garður og aðkoma : Suðurgarðurinn er einstaklega skjólgóður og fallega hannaður með harðviðarpalli, stuðlabergi og stemningslýsingu. Hellulögð heimkeyrsla, snyrtileg aðkoma og gott bílaplan undirstrika vandaðan frágang eignarinnar. Helstu kostir : Einstök staðsetning við sjávarsíðuna / Mikið og óhindrað útsýni yfir Nauthólsvík, Öskjuhlíð, Perluna og Háskólann í Reykjavík / Samtals 232,2 fm, þar af 24,9 fm innbyggður bílskúr / Fjögur rúmgóð svefnherbergi / Tvö baðherbergi / Tvær stofur og bjart alrými / Svalir til suðurs og norðurs / Skjólgóður suðurgarður með glæsilegum sólpalli / Reglulega viðhaldið og einstaklega fjölskylduvænt hús / Falleg hönnun vel útfært skipulag / Nýr Barnaskóli og nýr leikvöllur í hverfinu. Lokaorð : Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta þess að búa við sjávarsíðuna án þess að fórna þægindum borgarlífsins. Arkitektúr, útsýni, birta og vel útfært skipulag skapa heimili sem hefur bæði karakter og hlýju. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast glæsilegt fjölskylduhús á einum vinsælasta stað Kópavogs. Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veita Ísak V. Jóhannsson og Viðar Marinósson sími: 822-5588 isak@fastlind.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.