Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2024
Deila eign
Deila

Ketilsstaðir

SumarhúsSuðurland/Hella-851
148.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
633.176 kr./m2
Fasteignamat
50.700.000 kr.
Brunabótamat
69.350.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2342954
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stór verönd
Upphitun
Hitaveita/ gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Björgvin Þór Rúnarsson lgf og Hrönn Ingólfsdóttir lgf s: 692-3344 og hronn@fasteignaland.is, kynna eignina Ketilsstaðir 0 lóð 9,Rangárþing ytra,nánar tiltekið eign merkt 101, fastanúmer 2342954 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.

Stórglæsilegt og eitt  það flottasta í sveitinni n.t. Ketilsstaðir lóð 9, Rangárþing ytra , fullbúið sumarhús á einni hæð á einstökum útsýnisstað. Útsýni er til flestra átta og afar friðsælt við Heklurætur.
Húsið er skráð 125,1 fm og svo er gestahús eða tómstundahús um 13,2 fm að auki. Húsið er að mestu álklætt, áltré gluggar eru í húsinu frá Byko.
Í stofu er rennihurð á verönd. Hitaveita og gólfhiti er í öllu húsinu. Vandað rafkerfi frá Free@ home. Um 170 fm verönd er við húsið. Vandaðar innréttingar eru frá Fríform.


Stutt í sundlaugina á Laugalandi, golfvöllinn á Hellu og góður veitingastaður er á Landhóteli, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta og fjölbreytta náttúru allt í kring, ásamt mikilli fjallasýn. Sumarhúsið er á 6.149 m2 eignalóð. 

Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Gesta snyrting er flísalögð.
Eldhús, stofa eru í stóru alrýmu, upptekin loft, falleg eyja með kvartssteini og vönduðum tækjum. 
Rennihurð úr stofu á stóra verönd.
Á herbergjagangi eru 3 herbergi.
Baðherbergi er flísalagt, sturta innrétting, hurð er af baði út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Þvottahús er flísalgt, innrétting.
Við húsið er 13,2 fm hús, parket er á gólfi. Tæki í eldhúsi og þvottahúsi fylgja.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Með kveðju.
Björgvin Þór Rúnarsson
Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali.
bjorgvin@fasteignaland.is
00354-855-1544

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dvergabakki 0
Bílskúr
Skoða eignina Dvergabakki 0
Dvergabakki 0
851 Hella
169.6 m2
Jörð/Lóð
312
530 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurvegur 2
Skoða eignina Víkurvegur 2
Víkurvegur 2
806 Selfoss
112 m2
Sumarhús
413
804 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Skoða eignina Þórðarbraut 2
Skoða eignina Þórðarbraut 2
Þórðarbraut 2
806 Selfoss
138.3 m2
Sumarhús
423
672 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Sámsstaðir 1
Skoða eignina Sámsstaðir 1
Sámsstaðir 1
861 Hvolsvöllur
159.2 m2
Sumarhús
333
565 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin