ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu tveggja herbergja íbúð í lyftuhúsi við Vallarbraut 6 – Aðeins fyrir 55 ára og eldriÍbúðin er björt og vel skipulögð tveggja herbergja á þriðju hæð. Lokaðar svalir í suð-vestur (út að Vallarbraut). Birt stærð er 74.4, þar af er íbúð 69,2 fm, svalir 5,6 fm og geymsla 5,2 fm.Fyrir skoðunarbókanir og nánari upplýsingar:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali
8674885 eða elin@allt.is Nánari lýsing:Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi ásamt sér geymslu á fyrstu hæðinni.
Forstofa/Hol – Rúmgott anddyri með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa – Björt og opin rými með parketi á gólfi. Útgengt á svalir með svalalokun.
Eldhús – Vel útbúið eldhús með rúmgóðri innréttingu og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi – Rúmgott herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi – Flísalagt að hluta, dúkur á gólfi. Ljós innrétting og sturta.
Þvottaaðstaða – Inn af baðherbergi er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla – Sameiginleg geymsla með hillum og dúk á gólfi.
Mjög snyrtileg og vel við haldin sameign. Björt og falleg eign á góðum stað!
Mjög góð staða á hjússjóði og framkvæmdarsjóði. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.