Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt vandað og vel skipulagt sumarhús/heilsárshús/einbýli með þrem svefnherbergjum og nýlega byggðum bílskúr á eftirsóttum stað við Sléttuveg 6, 846 Hrunamannahreppi/Flúðum. Samtals stærð 142.8 fm. Að auki fylgir nýr 15 fm útigeymsla/skúr í stíl við húsið á lóðinni. (er ekki á myndum)
Heitt vatn/hitaveita. Frábært land og eftirsótt staðsetning. (örstutt frá golfvellinum) Landið er allt afgirt, (hundheld) hlið í innkeyrslu.Um er að ræða glæsilegt og vel byggt hús í nálægð við golfvöllinn og golfklúbbinn Efra-Seli. Glæsilegt lóð, vel hirt og gróinn með
fallegum trjágróðri allt í kring ásamt litlu gróðurhúsi. Húsið og bílskúrinn er timburhús byggt á steyptri plötu með gólfhita. Stór og flott
timburverönd með heitum potti. Verönd er skjólgóð og snýr vel á móti sól. Flott og góð aðkoma er að húsinu. Mjög stutt er út á golfvöllinn, í verslun, veitingastaði og ýmsa þjónustu á Flúðum. Heitt og kalt vatn er tengt á veitukerfi Flúða (Hrunamannahrepps). Allar innréttingar voru sérsmíðaðar hjá Eldhúsval ehf. og Vinyl parket á gólfi er frá Birgisson ehf. Nánari lýsing: Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp auk fatahengi.
Hol er með aðgengi í önnur rými neðri hæðar, vinyl parket á gólfi.
Baðherbergi er á hægri hönd með flísum á gólfi, sturtuklefa, handklæðaofni, upphengdu salerni, glugga og vandaðri baðinnréttingu með neðri og efri skápum, handlaug og spegli með lýsingu. Auk þess er góð hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél í vinnuhæð ásamt góðu skápaplássi. Þar fyrir innan er yfirbyggður gangur með teppi á gólfi og geymslulofti og aðgengi út á bæði bílaplan og út á verönd með heitum potti. Góð
geymsla svo þar fyrir innan með skolvaski, hillum og flísum á gólfi.
Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi eru á neðri hæð, bæði með vinyl parket á gólfi og fataskápum.
Eldhús er með hátt til lofts og vandað innréttingu, u-laga innréttingu með bökunarofn í vinnuhæð, gott skúffu og skápapláss ásamt góðu vinnuplássi. Helluborð er með háf þar fyrir ofan. Gluggi við vask gefur góða birtu inn. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgir.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með vinyl-parket á gólfi, opið er að hluta til inn í eldhús.
Hátt til lofts, gólfsíðir gluggar og aðrir gluggar gefa mikla og flotta birtu inn í húsið. Rennihurð veitir aðgengi út á
stóra timburverönd með skjólvegg, grindverki og heitum potti.Frá holi er hringstigi upp á efri hæð sem er undir súð með vinyl parket á gólfi, þar er eitt gott
svefnherbergi, sér
salerni með handlaug og innskot sem hægt er að nýta sem svefnaðstöðu. Hægt er að setja upp hefðbundna hitaveituofna þar, tengi klár. Seljandi hefur hins vegar ekki talið þörf á að hafa ofna þar í ljósi þess að hitinn leitar allur upp og hitastig ávallt verið gott og þægilegt að hans sögn.
Bílskúrinn er 27.8 fm. Gólfhiti þ.e heitt og kallt vatn. Rafdrifinn hurð og ein gönguhurð veitir aðgengi að bílskúr. Skolvaskur í bílskúr, ens er gott milliloft komið líka.
Húsið er skráð 114,4 fm. komið á byggingar- og matsstig 7. Bílskúr frístandandi er 27.8 fm og er fullbúinn. Samtals stærð eignar. 142.2 fm. Húsið var byggt árið 2010 og bílskúr var byggður árið 2021/2022. Í húsinu er gistirými fyrir allt að 10 manns ef vill. Allar framkvæmdir og allt viðhald við húsið er til fyrirmyndar líkt og sjá má við sjónskoðun á húsinu, bílskúrnum og á lóðinni í heild sinni.
Þess má geta að deiluskipulagsbreyting var nýlega heimiluð, eftir breytingu er heimilt innan hvers byggingarreits að byggja allt að
150,0 fm. frístundarhús og tvö allt að 40,0 fm. frístundahús og/eða geymslu, þ.e.innan hámarks nýtingarhlutfalls 0,03Lóðin er 5216,9 fm. leigulóð leigð til 50 ára í senn, samningur er frá 24. ágúst 2010 til 24. ágúst 2060 og framlengis sjálfkrafa í 5 ár í senn, ef hvorugur aðili segir upp leigunni. Leigugjald fyrir hið leigða land er ca 119.000. kr á ári, leigan er verðtryggð miðað við vísitölu byggingarkostnaðar, 497 stig þann 01.11.2009, og miðast verðtyggingarálag leigugjaldsins við 1. nóvember ár hvert.
Hita og rafmagnskostnaður ca kr. 18.000 pr. mán. Fasteignagjöld ca kr. 430.000 pr. ár.
Ath að gámur sem sést á mynd er ekki til staðar núna.
Þetta er mjög áhugaverð eign á þessum vinsæla stað sem vert er að skoða frekar ! Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.