Fasteignaleitin
Skráð 19. okt. 2026

Kléberg 6

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
151.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
528.439 kr./m2
Brunabótamat
76.770.000 kr.
Byggt 1971
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22124012
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Kléberg 6, Þorlákshöfn.  Mikið endurnýjað 118m2 einbýlishús með 3 góðum svefnherbergjum og 34m2, fullbúnum  bílskúr.  Lóðin er stór og uppgróin, með verönd bæði framan við húsið, sem snýr í hásuður og einnig á baklóð með nýjum, heitum potti.
Eignin er frábærlega staðsett í grónu hverfi, rétt við skóla, leikskóla og íþróttasvæði.  

**Hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka skoðun í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**

Eignin skiptist svo:
* Forstofa með góðum skáp og flísum á gólfi.
* 3 góð svefnherbergi,
öll með fataskápum og harðparketi á gólfi.
* Mjög góð og björt stofa og borðstofa með nýlegu harðparketi á gólfi. Stórir gluggar sem snúa í hásuður. 
** Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta borðstofunni í 4. svefnherbergið eða vinnuherbergi. 
* Rúmgott eldhús með góðum borðkrók. 
Flísar á gólfi. 
* Búr/geymsla er inn af eldhúsi. Góðar hillur á veggjum og gólf flísalagt.
* Fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum,  fallegri mahony innréttingu og sturtuklefa. 
* Möguleiki er að útbúa lítið wc inn af forstofu.
* Gott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi.  Utangengt er á baklóð í heitan pott.   
* 9m2 útigeymsla með rafmagni er á baklóð.
* Bílskúrinn hefur nýlega verið klæddur að utan, er 33,6m2 og er fullbúin með rafmagni og hita.

*Garðurinn er uppgróinn og snýr í suður/norður.  Bílaplan er með möl. 

* Húsið hefur fengið afar gott viðhald: m.a. hefur verið sett nýtt þak á bílskúr, sett nýtt harðparket á flest gólf og gluggar verið endurýjaðir að stórum hluta. 

** Sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími:  483 3424


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og www.hamingjuhofn.is
  

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Suðurlands
http://eignin.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgarheiði 4V
Á einni hæð
Hleðslustöð
Opið hús:24. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Borgarheiði 4V
Borgarheiði 4V
810 Hveragerði
95,9 m2
Raðhús
412
656 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Fríholt 6
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Fríholt 6
Fríholt 6
250 Garður
141,6 m2
Raðhús
413
543 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Þelamörk 47C, endaraðhús
Á einni hæð
Þelamörk 47C, endaraðhús
810 Hveragerði
129 m2
Raðhús
312
678 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Þelamörk 47C, endaraðhús
Þelamörk 47C, endaraðhús
810 Hveragerði
129 m2
Raðhús
312
678 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin