LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali kynna glæsilega fjögurra til fimm herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi við Kuggavog 15 í Reykjavík. Aðeins þrjár íbúðir eru á hæðinni. Mikil lofthæð og fallegt útsýni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur með gluggum í þrjár áttir. Eldhús og stofur eru í opnu, björtu rými með útgengi á suðaustursvalir. Tvö baðherbergi, þar af annað inn af hjónaherbergi. Sameign er mjög snyrtileg. Falleg eign í nýlegu hverfi Vogabyggðar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.Íbúð 301 (efsta hæð):Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi og eldunareyju. Eldhús og stofa eru í opnu rými.
Tvær samliggjandi stofur í opnu og björtu rými, parket á gólfi, útgengi á 8,7 fm suðaustursvalir. Fallegt útsýni yfir í Elliðaárdal og til fjalla.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Inn af hjónaherbergi er sérbaðherbergi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og stærstum hluta veggja, hvít innrétting með handlaug, sturta með sturtugleri, handlæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi, gólfhiti.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og stærstum huta veggja, hvít innrétting, sturta með sturtugleri, handklæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi, gólfhiti. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi, skápar fyrir ofan vélar.
Sérgeymsla (12,5 fm), merkt 0019 í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérstæði í bílageymslu fylgir eigninni, merkt B31.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.