Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Völusteinsstræti 28 Bolungarvík - Stórt einbýlishús á tveimur hæðum auk bílskúrs, samtals 220 fermetrar að stærð, byggt um 1948. Á neðri hæð er inngangur og forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, setu/sjónvarpsstofa, baðherbergi og kyndiklefi. Á efri hæð er inngangur, fjögur stór herbergi, geymsla, salerni og þvottahús.
Bílskúr er skráður 34,4 m² að stærð og er byggður í kringum 1981, efri hæð ofan á bílskúr er byggð í kringum 2012 og var þakjárn þá endurnýjað á húsinu.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Aðalinngangur á neðri hæð, forstofugangur með flísum á gólfi og hiti í gólfi.
Eldhús var endurnýjað í kringum 2009, plastparket á gólfi, ljós innrétting og eyja, mikið skápapláss, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Rúmgóð stofa og borðstofa með plaspaketi á gólfi, búið er að fá leyfi til að opna út í garð þar sem er hægt að byggja sólpall/verönd.
Setu/sjónvarpsstofa með steyptu máluðu gólfi.
Baðherbergi endurnýjað 2018, flísar á gólfi, hvít innrétting, hornbaðkar með sturtu, handklæðaofn og hiti í gólfi, hvít loftaklæðning.
Kyndiklefi og geymsluherbergi, einnig er geymslupláss við enda gangs.
Efri hæð:
Sérinngangur á efri hæð, nýleg útihurð.
Gangur með flísum á gólfi. Hleri upp á risloft á gangi.
Svefnherbergi með plastparketi á gólfi.
Annað rúmgott svefnherbergi með nýlegu harðparketi og fataskáp, panill í lofti.
Þriðja herbergið einnig rúmgott, nýlegt harðparket á gólfi, nýlegt hvít loftaklæðning.
Þvottaherbergi með hvítri innréttingu og flísum á gólfi, vaskur og þvottavélatengi.
Svefnherbergi í stóru 34 m² rými í viðbyggingu fyrir ofan bílskúr, fataskápur, steypt málað gólf, hluti rýmis afstúkaður og nýtist sem geymsla.
Bílskúr er 34,4 m² að stærð, hvít bílskúrshurð, steypt gólf með niðurfalli, tvöfalt steypt bílastæði fyrir framan hús.
Stór garður fyrir framan og aftan hús.
Húsið er einangrað og klætt að utanverðu.
Framkvæmdir að sögn seljenda:
Húsið drenað ca 2008. Eldhús endurnýjað 2010, gluggi þar endurnýjaður.
Ofnalagnir gamlar að hluta, meirihluti ofna endurnýjaðir 2013 (tveir gamlir enn)..
Vatnslagnir endurnýjaðar og varmaskiptir settur upp ca. 2005.
Húsið klætt að utan ca 1995-96 og þak endurnýjað 2012. Byggt ofan á bílskúr 2012.