Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 4ja herbergja íbúð á 2. hæð við Blásali Í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign. Sérinngangur er af svölum. Nánari lýsing. Komið er inn á flísalagt anddyri með fataskápum. Stofa er björt með parketi og útgangi út á svalir. Eldhús er parketlagt með viðar innréttingu og eyju. Stofa og eldhús mynda alrými með aukinni lofthæð. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi og fataskápum. Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir með baðkari og sturtuklefa.
Þvottahús er innan íbúðar. Sérgeymsla er í sameign. Falleg eign í 4ja íbúða fjölbýli.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði