Fasteignaleitin
Opið hús:06. des. kl 13:00-14:00
Skráð 28. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Tryggvagata 10 - íbúð 108

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
83.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
70.900.000 kr.
Fermetraverð
853.189 kr./m2
Fasteignamat
3.220.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Rögnvaldur Örn Jónsson
Rögnvaldur Örn Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
2535149
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
8
Vatnslagnir
Nýtt hús
Raflagnir
Nýtt hús
Frárennslislagnir
Nýtt hús
Gluggar / Gler
Nýtt hús
Þak
Nýtt hús
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Matsstig
3 - Risin bygging
Eignamiðlun og JÁVERK kynna með stolti glæsilegar, vandaðar nýjar íbúðir, frábærlega staðsettar í þriggja til fjögurra hæða staðsteyptum húsum alveg við hinn nýja miðbæ á Selfossi, þar sem finna má fjölda veitingastaða, kaffihúsa og verslana. Stutt í sundlaug Selfoss og umferðaræðar. Vandaðar og bjartar íbúðir með stórum gluggum, steini á borðum, lýsingarhönnun frá Lumex, flísum á böðum og lyftu í öllum húsum þar sem allt efni er svans-vottað. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.  Geymsla og bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.  Byggingaraðili er JÁVERK sem er þekkt er fyrir frábæra hönnun og vönduð vinnubrögð.

Vakin er athygli á því að Eignamiðlun er með til sölumeðferðar allar íbúðirnar í húsunum Tryggvagata 10 og Tryggvagötu 12. Hafið samband við sölumenn fyrir frekari upplýsingar.


***Heimasíða verkefnisins***

Íbúð 108 í Tryggvagötu 10, merkt 01-0108, er skráð samtals 83,1 fermetrar í fasteignaskráningu, sem skiptist í 73,0 fermetra íbúð og 10,1 fermetra geymslu í kjallara merkt 01-0027. Einnig fylgir bílastæði í bílakjallara merkt 05-B057. Fastanúmer eignarinnar er F253-5149. Íbúðin er skemmtilega hönnuð þriggja herbergja með stórri eldunareyju sem skiptir rúmgóðu og skemmtilegu alrými í tvo hluta. Gegnið er úr stofurými út á verönd. Rými fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. 
 


Allar upplýsingar veita:
·         Rögnvaldur Örn Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is
·         Alfreð Valencia, viðskiptafræðingur, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
·         Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, löggiltur fasteignsali í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
·         Daði Hafþórsson, löggiltur fasteignasali í síma 824-9096 eða dadi@eignamidlun.is

Tryggvagata 10 til 12 eru fjögur staðsteypt hús, einangruð að utan og klædd með báruáli. Þök eru hallandi risþök, klædd ásoðnum tjörupappa og báruáli. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið eru úr galvaníseruðu stáli og pólýhúðuð. Sérafnotareytir íbúða á jarhæð eru timburklæddir. Allir gluggar og hurðir eru úr timbur-álkerfi frá IdealCombi. Húsin hafa farið í gegnum hljóðhönnun og er allt gler framleitt miðað við kröfur hljóðvistar, byggt á staðsetningu í húsunum.

Íbúðir verða afhentar með ljósum flísum á baðherbergjum en án megin gólfefna. Innveggir eru hlaðnir, sandsparslaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta með ljósum flísum en að öðru leiti sandsparslaðir og málaðir með Svans-vottaðri votrýmismálningu. Loft eru slípuð, sandspörsluð og máluð, en loft íbúða á efstu hæðum eru klædd með hvítum hljóðsogsdúk.

Hurðir íbúða eru hvítar, yfirfelldar með svörtum hurðarhúnum.
Fataskápar eru frá Selós ehf, sérsmíðaðir í fullri lofthæð og felldir að lofti með listum. Lamir og skúffubrautir eru með ljúflokun, ljós í skápum.
Eldhúsinnréttingar eru sömuleiðis sérsmíðaðar af Selós ehf. Á borðum eru Dekton steinborðplötur, ljúflokun á hurðum og skúffum, höldur úr stáli og lýsing undir efri skápum. Kæliskápar og uppþvottavélar eru innbyggðar í innréttingar. Span-helluborð eru innfeld í borðplötur, og í íbúðum með eldunareyju er gufugleypir innbyggður í helluborðið. Þar sem helluborð er ekki í eyju er hefðbundin vifta undir efri skáp. Eldhústæki eru flest frá AEG og blöndunartæki frá Grohe.
Innréttingar á böðum og þvottahúsum eru sömuleiðis sérsmíðaðar hjá Selós ehf. Silestone steinborðplötur á baði með undirlímdri hvítri handlaug, plastlagðar borðplötur undir þvottavél og þurrkara. Vönduð Grohe blöndunartæki og 25 sentimetra sturtuhaus í sturtum.

Í öllum íbúðum er hefðbundið ofnakerfi nema á baðherbergjum þar sem er gólfhiti. Jafnvægisstillt loftræstikerfi með varmaendurvinnslu er í öllum íbúðum.
Frekari upplýsingar um frágang húsanna má finna í skilalýsingu.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt í eftir fullnaðarfrágang verkefnisins.

Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 |
www.eignamidlun.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2535149
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
B5
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
3 - Risin bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kringlumýri 12
Opið hús:10. des. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kringlumýri 12
Kringlumýri 12
800 Selfoss
96.7 m2
Raðhús
413
754 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hamravík 11
Skoða eignina Hamravík 11
Hamravík 11
800 Selfoss
100 m2
Raðhús
413
699 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Fífuland 19
Skoða eignina Fífuland 19
Fífuland 19
800 Selfoss
100.9 m2
Raðhús
413
682 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
71.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin