Fasteignaleitin
Skráð 31. ágúst 2026

Reykás 49

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
161.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
651.148 kr./m2
Brunabótamat
83.550.000 kr.
Byggt 1983
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20464536
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega 161,1 m2 rúmgóða og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum með bílskúr við Reykás 49, Reykjavík.  Frábær fjölskyldu eign með útsýni þar sem stutt er í skóla, íþróttamannvirki og fallega náttúru og gönguleiðir allt um kring. Samkvæmt HMS er neðri hæðin 95,4 m2, efri hæðin er 35,7 m2, geymslan er 6,8 m2. ásamt þvi að bílskúrinn 23,2 m2. Nýtanlegir fermetrar eru mun fleiri þar sem hluti efri hæðar er undir súð.

Neðri hæðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús opið inn í stofu, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og tvennar svalir. Efri hæðin skiptist í sjónvarpsstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. 

Nánari lýsing neðri hæð
Forstofan er flísalögð með góðum fataskáp 
Eldhús með nýju eldhúsi með glæsilegri innréttingu frá Parka með tveimur ofnum, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir, eyja sem hægt er að sitja við með helluborði með Elica viftuháf yfir. harðparket á gólfi.
Þvottahús er innaf eldhúsi með nýlegum innréttingum . Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa /borðstofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á svalir til suðurs með fallegu útsýni.
Hjónaherbergið er rúmgott með fataskáp, útgengi út úr  hjónaherberginu út á norðursvalir.
Barnaherbergi með harðparkti á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með sturtuklefa og innréttingu, flísalagt gólf og veggir, upphengt salerni og handklæðaofn. 

Nánari lýsing efri hæðar- Góður stigi upp upp á efri hæðina.
Sjónvarpsstofa með harðparketi á gólfi.
Tvö  barnaherbergi með harðparketi á gólfi , annað með fataskáp. Nýjir þakgluggar eru í herbergjunum. 
Baðherbergið er nýlega endurnýjað með flísalögðu gólfi, og kalkmálningu á vegg, innrétting með spegli fyrir ofan, sturtubotn. 
Sér geymsla er í sameign og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Bílskúrinn er í bílskúrslengju. Heitt og kalt vatn. Milliloft með miklu geymsluplássi.Rafdrifinn opnari.

Helstu endurbætur sameign,
* 2022 skipt um pappa/járn, rennur og rennubönd
* 2022 endurnýjun hluta af gluggum íbúðarsem þurfti
* 2020 drenað fyrir meðfram stigahúsi
* 2024 neysluvatnslagnir hreinsaðar og fóðraðar. 
* Eldvarnarhurðar í sameign endurnýjaðar
* Dyrasímar endurnýjaðir


Helstu endurbætur innan íbúðar
* Eldhús endurnýjað frá A-Ö
* Parket endurnýjað á neðri hæð
* Allar innihurðar endurýjaðar ( fyrir utan tvæær hurðar á efri hæð )
* Allir gluggar endurnýjaðir í íbúð ( fyrir utan stofu og hjónaherbergisglugga ) 
* Baðherbergi á efri hæð endurnýjað 
* Þvottahúsinnrétting endurnýjuð


Falleg og rúmgóð íbúð með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergum, tvennum svölum og bílskúr. Mikið útsýni er frá íbúðinni. Stutt er í ósnortna náttúru og gönguleiðir. Stutt í stofnbrautir og alla þjónustu, skóla, leikskóla og afþreyjingu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reykjafold 22
Efsta hæð
Opið hús:03. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Reykjafold 22
Reykjafold 22
112 Reykjavík
198 m2
Hæð
624
656 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 409
Orkureiturinn D2 409
108 Reykjavík
145.6 m2
Fjölbýlishús
322
1050 þ.kr./m2
152.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 601
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:03. sept. kl 16:30-17:00
Laugaborg íbúð 601
105 Reykjavík
175.2 m2
Fjölbýlishús
423
1478 þ.kr./m2
259.000.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (106)
Breiðhöfði 17 (106)
110 Reykjavík
89.7 m2
Fjölbýlishús
211
1002 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin